21 nóvember 2025

/

Viðauki við almenna eigandastefnu félaga í eigu ríkisins gefinn út

{image.Description}
Hari

Gefinn hefur verið út viðauki við almenna eigandastefnu fyrir öll félög í eigu ríkisins. Þar er kveðið á um viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur fyrirtækja í eigu ríkisins.

Vel skilgreind viðmið um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur eru hluti af góðum stjórnarháttum fyrirtækja. Slík viðmið eru til þess fallin að skila aukinni arðsemi til eiganda.
Samkvæmt viðmiðunum er mælst til þess að stjórnir fyrirtækja setji sér viðmið um arðsemi, viðmið um fjármagnsskipan með efri og neðri mörkum og arðgreiðslustefnu.

Fjármála- og efnahagsráðherra mótar almenna eigandastefnu fyrir öll félög í eigu ríkisins en kveðið er á um það í lögum um opinber fjármál.