24 nóvember 2025

/

Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála - umsóknarfrestur framlengdur til 30. nóvember

{image.Description}
Mynd: Hari

Heilbrigðisráðuneytið auglýsti styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála lausa til umsóknar 23. október síðastliðinn. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi. Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf.