25 nóvember 2025
/
Embætti ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra. Dómsmálaráðherra skipar í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Skipað er í embættið til fimm ára í senn.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn dómsmálaráðherra. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga til þess að móta og efla starf ráðuneytisins. Hann ber meðal annars faglega og fjárhagslega ábyrgð á starfsemi ráðuneytisins og veitir ráðherra upplýsingar og þá ráðgjöf sem þarf til að hann geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og mótað stefnu á málefnasviðum ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stuðlar að framgangi og árangri löggjafar, samræmir stefnu og aðgerðir við önnur ráðuneyti þegar málefni skarast og tryggir að þjónusta, málsmeðferð og frágangur mála sé faglegur. Hann leiðir jafnframt stjórnendateymi ráðuneytisins og vinnur að því að hámarka árangur þess.
Í ráðuneytinu eru sjö skrifstofur sem ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Stofnanir á málefnasviði ráðuneytisins eru 47 talsins.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2025 og skal umsókn skilað í gegnum Starfatorg.