25 nóvember 2025

/

Fundur Velferðarvaktarinnar 25. nóvember 2025

76. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og á Teams.

25. nóvember 2025, kl. 14.00-16.00.

 

1. Staða fólks af erlendum uppruna – samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar

Kolbeinn Stefánsson og Halldór Sigurður Guðmundsson frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands,

hafa frá árinu 2022 unnið að rannsóknarverkefni fyrir forsætisráðuneytið um fátækt og áætlaðan

samfélagslegan kostnað. Á fundinum kynnti Kolbeinn hluta verkefnisins sem snýr að fátækt og

stöðu fólks af erlendum uppruna.

 

2. Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna

Sólrún Engilbertsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu, kynnti fyrstu skref í vinnu við stefnu og aðgerðaráætlun gegn fátækt barna á Íslandi sem er að fara í gang innan ráðuneytisins. Er þetta fyrsta stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna og gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin með vorinu 2026. Velferðarvaktin mun fá að fylgjast með framvindu verkefnisins.

3. Úrræði fyrir einstaklinga sem voru í þjónustu hjá Janus endurhæfingu

Eysteinn Eyjólfsson, frá VIRK, sagði frá afdrifum þeirra einstaklinga sem sóttu geðendurhæfingu hjá Janus endurhæfingu og eru núna komnir yfir til VIRK, sem tók við endurhæfingunni sl. sumar. Eysteinn kynnti einnig Ung VIRK sem er sérsniðin þjónustuleið sem getur hentað einstaklingum á aldrinum 16-29 ára sem eru með litla náms- eða vinnusögu, sem eiga erfitt með að haldast í starfi eða námi eða þurfa einstaklingsmiðaðan stuðning við atvinnuleit.

4. Fréttir úr baklandinu

  • AMSIS samtökin. Margrét Júlía Rafnsdóttir kynnti starfsemi AMSIS sem er nýr aðili að Velferðarvaktinni. Samtökin leggja áherslu á að vinna gegn fátækt og stuðla að jöfnum tækifærum fyrir alla.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga. María Ingibjörg Kristjánsdóttir sagði frá því sem er efst á baugi hjá Sambandinu varðandi verkefni sem snerta málefnasvið vaktarinnar.
  • Umboðsmaður skuldara. Ásta Sigrún Helgadóttir sagði frá stöðu mála hjá embættinu.

5. Önnur mál

  • Tillaga að erindi til ráðherra vegna umræðu um húsnæðisbætur sem leggja átti fram á fundinum verður send fulltrúum í tölvupósti til samþykktar.
  • Næsti fundur Velferðarvaktarinnar verður haldinn í janúar.