25 nóvember 2025

/

Innflytjendur og samfélagið: Morgunverðarfundur innflytjendaráðs og afhending styrkja

{image.Description}
Hari

Innflytjendaráð stendur fyrir morgunverðarfundi á alþjóðlega mannréttindadeginum þann 10. desember næstkomandi kl. 9:00-11:00. Fundurinn fer fram á Reykjavík Natura hótelinu og flutt verða margvísleg erindi sem öll tengjast málefnum innflytjenda.

Dagskránni lýkur með því að Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.

Morgunverðarfundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá sig fyrir fram: Skráning á morgunverðarfund.

Innflytjendur og samfélagið

8:30 Morgunverður og skráning

Margmiðlunarverkið Facets of identity eftir listakonuna Alina Kapatsyna frumsýnt í sal og streymi.

9:00 Setning

Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs

Aðgengi innflytjenda að fjármálaþjónustu á Íslandi

Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, kynnir niðurstöðu rannsóknar þeirra Önnu Maríu Wojtynska, lektors við mannfræðideild HÍ, um aðgengi innflytjenda að fjármálaþjónustu á Íslandi

Samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar: Staða fólks af erlendum uppruna

Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafardeild HÍ, og Kolbeinn H. Stefánsson, dósent, kynna niðurstöður rannsóknar um stöðu fólks af erlendum uppruna.

Mállíðan: Að kanna kynjaðan heilsumun í íslenskunámi

Logan Sigurðsson frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi segir frá verkefni sem gengur út á að styðja konur við að yfirvinna heilsufarsáskoranir á borð við streitu, kvíða og þunglyndi sem geta valdið hindrunum við að læra nýja hluti, einkum tungumál. Með þessu verða til hvetjandi aðstæður sem auka sjálfsvirðingu og sjálfstraust kvennanna.

Byggjum brýr

Katarzyna Agnieszka Rabeda, deildarstjóri íslenskubrautar í Kvennaskólanum í Reykjavík, kynnir verkefnið Byggjum brýr sem er ætlað að styðja við, valdefla og fræða ungmenni af erlendum og íslenskum uppruna um fjölmenningu, inngildingu, fordóma og samfélagsleg málefni.

Afhending styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2025

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.

11:00 Fundarlok

Skráning á morgunverðarfund innflytjendaráðs: Innflytjendur og samfélagið