02 desember 2025

/

Samkomulag undirritað við Litáen um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES

{image.Description}
Gabrielius Jauniškis

Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021 – 2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Litáens hins vegar var undirritað í dag. Harald Aspelund, sendiherra Íslands gagnvart Litáen, undirritaði samkomulagið fyrir hönd Íslands.

Með undirrituninni hófst formlegur undirbúningur úthlutana úr Uppbyggingarsjóðnum í Litáen á tímabilinu 2021–2028. Markmið sjóðsins er að styrkja félagslega og efnahagslega samheldni í Evrópu og treysta tvíhliða samskipti gjafríkjanna við þau aðildarríki Evrópusambandsins sem njóta stuðnings úr sjóðnum.

Samkomulagið felur m.a. í sér stofnun sérstakrar áætlunar á sviði almannavarna sem miðar að auknum viðbúnaði og seiglu samfélagsins í Litáen, með hliðsjón af áskorunum sem skapast hafa í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Ísland mun í gegnum sendiráð sitt í Helsinki koma að framkvæmd samkomulagsins og stuðla að áframhaldandi tvíhliða samstarfi ríkjanna.