03 desember 2025
/
Nr. 909/2025 Úrskurður
Hinn 3. desember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 909/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25070348
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 31. júlí 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. júlí 2025, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi kom til Íslands 30. júlí 2025, með flugi frá Mílanó, Ítalíu. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsett sama dag, var kæranda vísað frá landinu.
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að skýringar kæranda á tilgangi dvalar væru ótrúverðugar auk þess sem hann hefði ekki sýnt fram á næg fjárráð fyrir dvöl á Íslandi og brottför til heimaríkis.
Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 12. ágúst 2025, hafi tollgæsla á Keflavíkurflugvelli óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ferðamanns sem hafi verið með ótrúverðuga ferðasögu.
Aðspurður um tilgang dvalar kvaðst kærandi vera kominn til landsins til þess að hitta tiltekna konu sem búsett væri hér á landi. Að sögn kæranda hefðu þau kynnst á Spáni í gegnum sameiginlegan vin. Þau væru eingöngu vinir en kærandi hafi ætlað að gista hjá henni á meðan dvölinni stæði. Aðspurður um fjármuni kvaðst kærandi ekki vera með reiðufé en hann hefði 10.000 evrur á bankareikningi. Kærandi hafi þó ekki getað sýnt lögreglu fram á innstæðu á reikningi. Kærandi sýndi lögreglu fram á farmiða úr landi að lokinni dvöl. Við skoðun í kerfum lögreglu hafi komið í ljós að konan sem kærandi hugðist heimsækja væri skráð aðili í öðru fávísunarmáli. Í því máli hefði annar ferðamaður frá Albaníu gefið upp samhljóða ferðasögu og kærandi. Sá aðili lýsti umræddri konu sem kærustu sinni og að þau hefðu kynnst í skemmtiferð á Spáni.
Kæranda hafi verið boðið í aðstöðu lögreglu á Keflavíkurflugvelli til frekara viðtals. Kæranda var kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst hafa þekkt umrædda konu í um þrjú ár. Þau hafi kynnst í gegnum sameiginlegan vin og hafi umræddur vinur hvatt kæranda til þess að heimsækja konuna á Íslandi. Þá hafi kærandi hvorki getað greint frá eftirnafni konunnar né við hvað hún starfaði. Aðspurður um persónulega hagi konunnar kvað kærandi hana vera einhleypa og barnlausa auk þess sem hún byggi ein. Hafi upplýsingar í kerfum lögreglu á hinn bóginn leitt í ljós að hún væri í sambúð með manni og ætti tvö börn. Aðspurður kvaðst kærandi ekki þekkja aðilann sem venslaður væri við lögreglumál vegna samhljóða ferðasögu og kærandi hafi gefið upp. Þá kvaðst kærandi ekki þekkja sambúðarmaka konunnar sem hann kvaðst vera að heimsækja. Inntur eftir svörum hafi kærandi ekki getað gefið frekari upplýsingar um fyrirhugaða ferð sína.
Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Lagði lögregla til grundvallar að tilgangur dvalar kæranda væri ótrúverðugur auk þess sem hann gæti ekki sýnt fram á nægileg fjárráð.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 31. júlí 2025. Hinn 11. ágúst 2025 var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 6. ágúst 2025 ásamt fylgigögnum. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 12. september 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi komið til landsins til þess að dvelja í skamman tíma hjá vinkonu sinni. Kærandi hafi upplýst lögreglu um að hann væri handhafi ítalsks dvalarleyfis, sýnt fram á brottfararmiða úr landi og veitt lögreglu skýringar á gistiplássi og fjármunum. Kærandi byggir á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni hér á landi í skilningi c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda sé óljóst á hverju lögregla hafi byggt ákvörðun sína. Kærandi hafi sýnt fram á nauðsynleg gögn og hafi því uppfyllt skilyrði fyrir komu til landsins. Sé hin kærða ákvörðun ólögmæt og beri að fella hana úr gildi.
Kærandi byggir einnig á verulegum málsmeðferðarannmörkum, efnislegum annmörkum og skorti á rökstuðningi. Hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, með því að leiðbeina kæranda ekki um framlagningu nauðsynlegra gagna eða bjóða honum að skýra nánar frá tilgangi komu sinnar. Byggir kærandi einnig á því að lögregla hafi ekki gætt að meðalhófi þar sem ekki tíðkist að krafist sé jafn ítarlegrar gagnaframlagningar og skýringa fyrir tilgangi dvalar af hálfu aðila sem komi til landsins.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum. Þar að auki er kærandi handhafi ítalsks dvalarleyfis, sbr. 10. tölul. II. hluta viðauka 9 við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 30. júlí 2025, byggir á c- og d-liðum 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi sem ferðamaður í tvo daga frá 30. júlí til 1. ágúst 2025. Um tilgang dvalar kvaðst kærandi vera kominn til landsins til þess að hitta vinkonu sína og myndi hann gista hjá henni. Samkvæmt skýrslu lögreglu hafi það vakið upp grunsemdir að frásögn kæranda væri efnislega samhljóða frásögn annars ferðamanns frá því fyrr í sama mánuði, þ.e. samvera með umræddri konu. Hafi það gefið lögreglu tilefni til þess að rannsaka betur tengsl kæranda við gestgjafa sinn. Í ljós hafi komið nokkuð óreiðukenndur framburður þar sem kærandi hafi t.a.m. ekki þekkt eftirnafn gestgjafans né vitað við hvað hún starfaði. Þá hafi kærandi farið rangt með upplýsingar um sambúðarstöðu og fjölskylduhagi gestgjafans og ekki kannast við sambúðarmaka hennar og ekki vitað að hún ætti börn. Að framangreindu virtu hafa skýringar kæranda á tilgangi dvalar og tryggu húsnæði ekki staðist. Hefur kærandi því ekki fært rök fyrir tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni, sbr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.
Samkvæmt gögnum málsins bar kærandi fyrir sig að hafa 10.000 evrur á bankareikningi en hann hafi þó ekki getað sýnt fram á það. Þá hafði kærandi hvorki reiðufé né ferðatékka undir höndum. Að framangreindu virtu hafði kærandi ekki sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi í tvo daga. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Kærandi vísar jafnframt til þess að málsmeðferð og ákvörðun lögreglunnar hafi brotið gegn 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga. Að virtum atvikum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemd við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu í máli kæranda.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfest.
Athugasemdir við störf lögreglu
Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar eða næg fjárráð. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum tók lögregla hina kærðu ákvörðun 30. júlí 2025 en hún var kærð til kærunefndar 31. júlí 2025. Kærunefnd óskaði eftir afhendingu gagna málsins af hálfu Lögreglustjórans á Suðurnesjum með tölvubréfi, dags. 31. júlí 2025, og lét lögregla nefndinni gögn málsins í té 12. september 2025. Gagnasending lögreglu innihélt skjal, sem nefnt var samantekt, en skjalið er dagsett og undirritað 12. ágúst 2025.
Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 40/2012 ber stjórnvöldum, við meðferð stjórnsýslumála, að skrá upplýsingar um málsatvik sem veittar eru munnlega eða viðkomandi fær vitneskju um með öðrum hætti ef þær hafa þýðingu fyrir úrlausn máls og er ekki að finna í öðrum gögnum þess. Sama á við um helstu ákvarðanir um meðferð máls og helstu forsendur ákvarðana, enda komi þær ekki fram í öðrum gögnum málsins. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga kemur fram að skráning upplýsinga í samræmi við umrætt lagaákvæði skuli gera eins fljótt og unnt er svo skráning upplýsinganna verði bæði nákvæm og rétt. Þá er haft í huga að oft er ekki fyrirséð á þeim tíma sem upplýsingar koma fram hvort þær hafi þýðingu fyrir málið sem ætti að leiða til þess að meira sé skráð en minna, þó ekki svo langt að það standi nauðsynlegri skilvirkni stjórnsýslunnar fyrir þrifum.
Framangreind skráningarskylda á við án tillits til þess hvort mál hefur sætt kæru til æðra stjórnvalds. Þrátt fyrir þetta verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að farist hafi fyrir að skrá formlega niður þau atvik sem lágu til grundvallar hinni kærðu ákvörðun og að það hafi ekki verið gert fyrr en ellefu dögum eftir að ákvörðunin var tekin. Verður því ekki annað séð en að við meðferð lögreglu í máli kæranda hafi skráningarskylda 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga verið vanrækt, enda upplýsingarnar ekki skráðar eins fljótt og unnt var. Er því beint til lögreglu að gæta að framangreindu við meðferð mála um frávísun. Eins og atvikum málsins háttar er annmarkinn þó ekki slíkur að valdi ógildingu ákvörðunarinnar og hefur ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir