04 desember 2025
/
Embætti ríkislögreglustjóra laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti ríkislögreglustjóra. Leitað er að öflugum leiðtoga með skýra sýn og getu til þess að leiða fólk til árangurs, í þeim tilgangi að móta og efla starfsemi embættisins.
Hlutverk og ábyrgð
Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglu í umboði dómsmálaráðherra. Ríkislögreglustjóri er forstöðumaður embættisins og ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á starfi þess. Hlutverki ríkislögreglustjóra er nánar lýst í 5. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og reglugerð um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. Eitt af hlutverkum ríkislögreglustjóra er að starfrækja lögregluráð sem er formlegur samráðsvettvangur lögreglustjóra og er ríkislögreglustjóri formaður ráðsins.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Aðrar hæfniskröfur
- Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun er skilyrði.
- Rík samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði.
- Þekking og yfirsýn yfir verkefni lögreglunnar og skýr framtíðarsýn varðandi embætti ríkislögreglustjóra og þróun löggæslu er skilyrði.
- Þekking og reynsla á sviði reksturs og áætlanagerðar er skilyrði.
- Þekking og reynsla af umbótastarfi er kostur.
- Reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur.
- Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Dómsmálaráðherra skipar í embætti ríkislögreglustjóra til fimm ára í senn og skipað verður í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2025 og skal umsókn skilað í gegnum Starfatorg.