04 desember 2025
/
Ísland undirritar loftferðasamning við Kóreu
Loftferðasamningur milli Íslands og Lýðveldisins Kóreu var undirritaður í Osló í gær. Högni S. Kristjánsson, sendiherra Íslands í Noregi, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands.
Samningurinn kveður á um gagnkvæm réttindi og tekur til áætlanaflugs á milli ríkjanna á tilteknum flugleiðum.
Loftferðasamningar eru mikilvægir viðskiptasamningar sem tryggja flutninga fólks og farms til og frá Íslandi og greiða aðgang íslenskra flugrekenda að alþjóðamörkuðum.
Með samningnum er komið á skýrum og heildstæðum reglum sem auðvelda þróun flugsamgangna milli Íslands og Kóreu og styðja við áframhaldandi eflingu viðskiptatengsla milli ríkjanna.
Samningurinn tekur gildi þegar samningsaðilar hafa lokið tiltekinni málsmeðferð.
Hér má nálgast yfirlit yfir loftferðasamninga Íslands við önnur ríki.