04 desember 2025

/

Mál nr. 583/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 583/2025

Fimmtudaginn 4. desember 2025

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 14. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2025, vegna umsóknar hans um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 26. júní 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025. Með bréfi, dags. 3. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt að hluta. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 13. ágúst 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. september 2025. Með bréfi, dags. 23. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 7. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. október 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að honum finnist illa að sér vegið þar sem hann sé í miklum vandræðum. Kærandi hafi ekki haft neinar tekjur og hafi þurft að lifa af lánum.

 

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er vísað til þess að samkvæmt bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 23. september 2025, hafi kærandi kært synjun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2025, varðandi fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025, skv. 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Í kæru kæranda sé vísað til ákvörðunar sem hafi verið tekin á miðstöð Reykjavíkurborgar, dags. 27. júní 2025, en sú ákvörðun hafi ekki verið tekin fyrir af hálfu áfrýjunarnefndar velferðarráðs. Þá hafi með kærunni einnig fylgt ákvörðun miðstöðvar, dags. 3. júlí 2025, sem hafi verið áfrýjað til áfrýjunarnefndar velferðarráðs og því megi ætla að kæran lúti að þeirri ákvörðun.

Tekið er fram að kærandi sé X ára gamall einhleypur karlmaður. Hann eigi uppkomin börn og búi í almennu leiguhúsnæði í B, en hann hafi flutt lögheimili sitt frá Reykjavík til B í byrjun júlí 2025. Kærandi sé menntaður smiður en sé óvinnufær og hafi sótt um endurhæfingu í Virk. Hann eigi sögu um vímuefnavanda og líkamleg veikindi. Kærandi hafi þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. maí 2023 til 30. september 2024 en eftir það fengið greiddan endurhæfingarlífeyri þar sem hann hafi verið hjá Virk. Að sögn kæranda hafi hann ekki getað sinnt endurhæfingu vegna veikinda og innlagna á spítala.

Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu með umsókn, dags. 26. júní 2025, vegna tímabilsins 1. til 30. júní 2025. Umsóknin hafi verið samþykkt að hluta með bréfi þann 3. júlí 2025. Kærandi hafi skotið framangreindri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs og óskað eftir undanþágu frá tekjum. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 13. ágúst 2025 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar um undanþágu frá tekjum vegna fjárhagsaðstoðar tímabilið 1. júní 2025 til 30. júní 2025, skv. 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.“

Kærandi hafi nú skotið framangreindri ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglnanna komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglnanna. Um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg gildi sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu ef hann geti ekki framfleytt sér. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, sbr. 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í III. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé að finna ákvæði sem lúti að rétti til fjárhagsaðstoðar. Við mat á því hvort umsækjandi geti átt rétt til fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglunum skuli meðal annars horft til 12. gr. reglnanna sem kveði á um hvernig skuli litið til tekna og eigna umsækjanda.

Í 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Reykjavík segi:

„Allar tekjur einstaklingsins/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Mæðra- og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna. Hið sama á við ef umsækjandi á rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.“

Upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu til einstaklings sem búi með öðrum, leigi húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hafi ekki aðgang að húsnæði geti numið allt að 208.591 kr., sbr. 4. mgr. 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Kærandi leigi íbúð án þinglýsts leigusamnings. Óskað hafi verið eftir innborgunaryfirliti á reikningum kæranda og hann hafi verið með innborganir og innlagnir á reikningi sínum, samtals að upphæð 206.727 kr. Litið hafi verið til framangreindra innborgana við ákvörðun fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Umsókn kæranda hafi því verið samþykkt að hluta og hann hafi fengið greitt 1.864 kr. fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025. Að sögn kæranda hafi umræddar innborganir verið lán frá vinum og ættingjum til að aðstoða hann á erfiðum tímum. Kærandi hafi skotið framangreindri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarmála sem hafi staðfest synjun starfsmanna Austurmiðstöðvar um undanþágu frá tekjum vegna tímabilsins 1. til 30. júní 2025, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs talið rétt að líta til inneignar í banka samkvæmt reikningsyfirliti sem tekjur sem kæmu til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því staðfest synjun starfsmanna Austurmiðstöðvar á fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Með vísan til alls framangreinds verði að telja að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991 eða ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2025, vegna umsóknar kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 2. gr. reglnanna kemur einnig fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Samkvæmt 3. gr. framangreindra reglna skal við ákvörðun á fjárhagsaðstoð leggja til grundvallar grunnfjárþörf til framfærslu og frá henni dregnar heildartekjur. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði sé 208.591 kr. á mánuði, sbr. 4. mgr. 10. gr. reglnanna. Með tekjum er átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.fl., sbr. 1. mgr. 12. gr. reglnanna.

Í 2. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að allar tekjur einstaklingsins/maka í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, komi til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum skuli reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna. Hið sama eigi við ef umsækjandi eigi rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.

Í 9. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði til eigin nota og eina bifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skuli honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð. Ef umsækjandi, maki hans eða sambýlisaðili, eigi eignir sem nýst geta til framfærslu eigi hann ekki rétt á fjárhagsaðstoð.

Reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð ganga út frá því að nýta beri allar tekjur, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og allar eignir, aðrar en íbúðarhúsnæði til eigin nota og bifreið, sér til framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Fjárhagsaðstoðin er þannig neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að fjármunum sér til framfærslu.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi með innlagnir á reikningi sínum í umsóknarmánuði, samtals að fjárhæð 206.727 kr. Reykjavíkurborg leit til þeirrar fjárhæðar við ákvörðun um fjárhagsaðstoð til framfærslu og samþykkti því umsókn hans að hluta. Sú ákvörðun var í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð, sbr. það sem að framan hefur verið rakið.

Með vísan til þess er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að greiða kæranda 1.864 kr. í fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025, því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2025, vegna umsóknar A, um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 30. júní 2025, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir