04 desember 2025
/
Mál nr. 611/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 611/2025
Fimmtudaginn 4. desember 2025
A
gegn
Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 24. september 2025, um að synja umsókn hennar um fjárhagsaðstoð.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 13. ágúst 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 29. ágúst 2025, var umsókn kæranda synjað á þeim grundvelli að hún væri yfir tekjuviðmiðum fjárhagsaðstoðar. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 24. september 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. september 2025. Með bréfi, dags. 25. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 8. október 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. október 2025. Viðbótargögn bárust frá kæranda 1. desember 2025.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hún hafi fengið synjun á fjárhagaðstoð fyrir ágústmánuð þar sem hún hafi verið yfir tekjumörkum. Kærandi hafi greint Reykjavíkurborg frá því að ekki væri um hennar pening að ræða. Bróðir kæranda hafi lánað henni pening sem hún þurfi að greiða til baka. Ekki sé um tekjur að ræða fyrir vinnu. Kærandi spyrji hvað myndi gerast ef einhver myndi óvart millifæra á hana. Þá tekur kærandi fram að hún hafi eingöngu fengið greitt meðlag í septembermánuði sem hún hafi þurft að nota fyrir mat og því ekki getað greitt húsaleigu. Kærandi þurfi nú aðstoð til að borga húsaleigu.
III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar
Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá því að kærandi sé 31 árs gömul kona sem fari ein með forsjá þriggja barna. Kærandi sé frá B en hafi verið búsett á Íslandi í 21 ár. Barnsfaðir kæranda hafi flutt til B fyrir sex mánuðum og aðstoði kæranda fjárhagslega annað slagið. Kærandi búi í leiguíbúð á vegum Félagsbústaða og fái almennar húsaleigubætur sem og sérstakan húsnæðisstuðning. Kærandi hafi áður búið í C og stundað vinnu en hafi verið sagt upp þegar hún hafi verið ólétt af þriðja barni sínu. Henni hafi gengið erfiðlega að fá vinnu síðan þá en yngsta barn hennar sé X ára. Kærandi hafi verið í Virk starfsendurhæfingu og fengið greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun á þeim tíma en hafi hætt í Virk þar sem hún hafi fengið loforð um starf sem hafi svo ekki gengið eftir. Kærandi hafi því sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg og þegið greiðslur fjárhagsaðstoðar fyrir tímabilið 1. október 2023 til 30. september 2024 en hafi verið tekjulaus síðan þá. Kærandi hafi síðan í október 2024 fengið greiðslur mæðralauna, meðlags með þremur börnum, barnabætur, almennar húsaleigubætur sem og sérstakan húsnæðisstuðning.
Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu með umsókn, dags. 13. ágúst 2025, vegna tímabilsins 1. til 31. ágúst 2025. Umsóknin hafi verið synjað með bréfi þann 29. ágúst 2025. Kærandi hafi skotið framangreindri synjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 24. september 2025 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:
„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á Rafrænni miðstöð Reykjavíkurborgar um undanþágu frá eignum tímabilið 1. ágúst 2025 til 31. ágúst 2025, skv. 9. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.“
Kærandi hafi nú skotið framangreindri ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglnanna komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglnanna. Um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg gildi sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu ef hann geti ekki framfleytt sér. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, sbr. 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.
Í III. kafla reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé að finna ákvæði sem lúti að rétti til fjárhagsaðstoðar. Við mat á því hvort umsækjandi geti átt rétt til fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglunum skuli meðal annars horft til 12. gr. reglnanna sem kveði á um hvernig skuli litið til tekna og eigna umsækjanda. Þá segi í 9. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð:
„Eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði til eigin nota og eina bifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skal honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð. Ef umsækjandi, maki hans eða sambýlisaðili, á eignir sem nýtast geta til framfærslu á hann ekki rétt á fjárhagsaðstoð.“
Upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu til einstaklings, 18 ára eða eldri, sem rekur eigið heimili geti numið allt að 247.572 kr., sbr. 1. mgr. 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Kærandi hafi verið með innborganir á bankareikningi sínum að upphæð 786.000 kr. í júlí 2025 og 865.000 kr. í ágúst 2025. Það sé hærra en framangreind upphæð fjárhagsaðstoðar samkvæmt reglum um fjárhagsaðstoð og kærandi hafi getað nýtt það sér til farmfærslu fyrir umrætt tímabil. Framangreindar innborganir hafi verið millifærslur frá kæranda sjálfri, móður hennar, barnsföður og bróður. Framangreindar innborganir hafi að sögn kæranda verið lán frá móður hennar, barnsföður og bróður, auk þess sem bróðir hennar hafi verið að selja íbúð og hafi lánað henni fyrir bílaviðgerð sem og til þess að greiða ýmsa reikninga. Kærandi hafi geta staðið í skilum við greiðslu á húsaleigu og reikningum undanfarið ár. Þá hafi fagfundur Rafrænnar miðstöðvar ekki mælt með samþykkt í áfrýjun. Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs talið rétt að líta til inneignar í banka samkvæmt reikningsyfirliti sem eign í skilningi 9. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.
Með vísan til framangreinds hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs því staðfest synjun starfsmanna Rafrænna miðstöðvar á fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2025, sbr. 9. mgr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.
Þess megi geta að kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð til framfærslu með umsókn, dags. 11. september 2025, fyrir tímabilið 1. til 30. september 2025 sem hafi verið samþykkt að hluta á Rafrænni miðstöð þann 30. september 2025. Þá hafi kæranda verið úthlutað félagsráðgjafa á miðstöð Reykjavíkurborgar og verið skráð á biðlista hjá Atvinnu- og virknimiðlun Reykjavíkurborgar (AVM).
Með vísan til alls framangreinds verði að telja að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991 eða ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 24. september 2025, um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2025.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.
Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 2. gr. reglnanna kemur einnig fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.
Samkvæmt 3. gr. framangreindra reglna skal við ákvörðun á fjárhagsaðstoð leggja til grundvallar grunnfjárþörf til framfærslu og frá henni dregnar heildartekjur. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði sé 208.591 kr. á mánuði, sbr. 4. mgr. 10. gr. reglnanna. Með tekjum er átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.fl., sbr. 1. mgr. 12. gr. reglnanna.
Í 2. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að allar tekjur einstaklingsins/maka í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og/eða sérstakur húsnæðisstuðningur, komi til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum skuli reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna. Hið sama eigi við ef umsækjandi eigi rétt á greiðslum frá öðrum aðilum.
Í 9. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði til eigin nota og eina bifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skuli honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þó að tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð. Ef umsækjandi, maki hans eða sambýlisaðili, eigi eignir sem nýst geta til framfærslu eigi hann ekki rétt á fjárhagsaðstoð.
Reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð ganga út frá því að nýta beri allar tekjur, aðrar en greiðslur vegna barna og húsnæðis-/vaxtabætur og allar eignir, aðrar en íbúðarhúsnæði til eigin nota og bifreið, sér til framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Fjárhagsaðstoðin er þannig neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að fjármunum sér til framfærslu.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi með innlagnir á reikningi sínum í umsóknarmánuði og mánuðinum á undan, eða 786.000 kr. í júlí og 865.000 kr. í ágúst 2025. Að mati úrskurðarnefndarinnar var um eign að ræða sem kæranda bar að nýta sér til framfærslu í ágúst 2025 áður en til fjárhagsaðstoðar kæmi frá sveitarfélaginu.
Með vísan til þess er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2025, því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 24. september 2025, um að synja umsókn A9, um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2025, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir