05 desember 2025
/
1325/2025. Úrskurður frá 5. desember 2025
Hinn 5. desember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1325/2025 í máli ÚNU 25100019.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 21. október 2025, kærði […] lögfræðingur, f.h. […], […], […], […], Reykjaprents ehf., […], […] og […], ákvörðun Sveitarfélagsins Voga að synja beiðni þeirra um aðgang að gögnum.
Með erindi, dags. 30. júlí 2024, óskuðu kærendur eftir upplýsingum um samskipti Sveitarfélagsins Voga og Landsnets hf. frá þeim tíma sem sveitarfélagið hafnaði umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi þann 24. mars 2021 þar til 30. júní 2023 þegar sveitarfélagið veitti Landsneti framkvæmdaleyfi. Þann 29. ágúst 2024 afhenti sveitarfélagið kærendum gögn sem heyrðu undir beiðnina.
Hinn 18. ágúst 2025 sendu kærendur eftirfarandi erindi til sveitarfélagsins:
Í ljósi þess að viðsnúningur varð á afstöðu Sveitarfélagsins Voga gagnvart framkvæmdarkostum Suðurnesjalínu 2 eftir fundi við aðila frá Landsneti dagana 22. febrúar 2023 og 10. maí 2023, óska umbjóðendur mínir eftir staðfestingu á því að Sveitarfélagið Vogar búi ekki yfir minnisblöðum, minnispunktum né fundargerðum frá þessum tveimur fundum, að undanskilinni einni glærukynningu sem við höfum þegar undir höndum. Samhliða vísum við til skráningarskyldu Sveitarfélagsins Voga samkvæmt 27. gr. upplýsingalaga.
Sveitarfélagið brást við erindi kærenda þann 8. október 2025 og upplýsti þá um að engin frekari gögn væru til hjá sveitarfélaginu sem heyrðu undir gagnabeiðnina, önnur en þau sem kærendum hafi verið afhent 29. ágúst 2024, en á meðal þeirra gagna var glærukynning Landsnets frá fundi félagsins við Sveitarfélagið Voga, dags. 10. maí 2023.
Í kæru kemur fram að kærendur séu eigendur þriggja jarða sem liggja innan marka Sveitarfélagsins Voga. Þann 21. júní 2024 hafi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra veitt Landsneti hf. heimild til þess að taka hluta úr jörðum kærenda eignarnámi í þágu lagningar Suðurnesjalínu 2 í formi 220 kV loftlínu. Kærendur hafi höfðað mál fyrir dómstólum til ógildingar þeirri ákvörðun. Umrætt mál bíði nú niðurstöðu Landsréttar. Þá hafi sveitarfélagið veitt Landsneti framkvæmdarleyfi fyrir framkvæmdinni 30. júní 2023. Kærendur hafi stefnt sér inn í mál Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina sem höfðuðu mál gegn Landsneti hf. og Sveitarfélaginu Vogum til ógildingar framkvæmdaleyfisins. Málið bíði nú aðalmeðferðar fyrir Hæstarétti.
Í kæru kemur einnig fram að kærendur dragi í efa að engin gögn, að undanskilinni einni glærukynningu sem afhent var kærendum 29. ágúst 2024, séu til staðar „frá tveimur mikilvægustu fundum í aðdraganda leyfisveitingarinnar, einkum þar sem um var að ræða formlega fundi milli sveitarfélags og opinbers fyrirtækis, sem breytti afstöðu sveitarfélagsins til leyfisveitingarinnar“. Þá kemur fram að ef rétt reynist að engin gögn séu til um fundina hafi sveitarfélagið brotið í bága við skráningarskyldu stjórnvalda samkvæmt 27. gr. upplýsingalaga. Auk þess segir í kæru að valdsvið úrskurðarnefndar um upplýsingamál nái til þess að ganga úr skugga um að viðkomandi gögn séu ekki til staðar hjá sveitarfélaginu.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Sveitarfélaginu Vogum með erindi, dags. 27. október 2025, og sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að sveitarfélagið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Sveitarfélagsins Voga barst úrskurðarnefndinni 10. nóvember 2025. Umsögninni fylgdu þau gögn sem kæran varðar, þ.e. gögn sem kærendur höfðu þegar fengið afhent. Í umsögninni kemur fram að með erindi til kærenda, dags. 29. ágúst 2024, hafi öll umbeðin gögn verið afhent, þar á meðal öll gögn úr skjalakerfi sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hafi gert aðra leit í skjalakerfi sínu í tilefni af erindi kærenda, dags. 18. ágúst 2025, og enn aðra leit þegar kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál var kynnt sveitarfélaginu og staðfesti að ekki séu til frekari gögn sem falli undir upplýsingabeiðni kærenda.
Umsögn Sveitarfélagsins Voga var kynnt kærendum með erindi, dags. 12. nóvember 2025, og þeim gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir kærenda bárust 25. nóvember 2025. Þar kemur fram að sveitarfélaginu hafi ekki getað dulist mikilvægi þess að halda ítarlega skráningu yfir alla fundi sem lutu að framkvæmdinni. Kærendur ítrekuðu að þeir drægju í efa að engin gögn væru til frá svo mikilvægum fundum, hvort sem væri frá undirbúningi þeirra, fundunum sjálfum eða eftirmálum þeirra. Þá kröfðust kærendur þess að úrskurðarnefnd um upplýsingamál rannsakaði málið til hlítar samkvæmt rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og gengi úr skugga um að ekki væru til fleiri gögn um fundina tvo.
Athugasemdir kærenda voru kynntar Sveitarfélaginu Vogum með erindi, dags. 25. nóvember 2025. Þann 27. nóvember 2025 bárust frekari athugasemdir frá sveitarfélaginu. Í athugasemdunum mótmælti sveitarfélagið því sem kom fram í athugasemdum kærenda að Landsneti hf. hefði verið veitt framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 í beinu framhaldi af tveimur fundum þann 22. febrúar 2023 og 10. maí 2023 og að engin gögn væru til um þá. Þá ítrekaði sveitarfélagið að leitað hefði verið að umbeðnum gögnum í skjalakerfi sveitarfélagsins og þau gögn sem fundust við leitina hefðu þegar verið afhent. Aðrar upplýsingar um fundina tvo væru ekki til.
Óþarft er að rekja frekar það sem farm kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við meðferð þess.
Niðurstaða
Í beiðni kærenda sem hin kærða ákvörðun varðar var óskað staðfestingar Sveitarfélagsins Voga á að ekki lægju fyrir hjá sveitarfélaginu frekari gögn um fundi við Landsnet hf. frá 22. febrúar og 10. maí 2023 en þau sem þegar hefðu verið afhent. Úrskurðarnefndin skilur beiðnina þannig að með henni hafi verið óskað eftir frekari gögnum í tengslum við fundina tvo. Sveitarfélagið kveður að ekki liggi fyrir gögn önnur en þau sem kærendum hafi þegar verið afhent. Kærendur fella sig ekki við þær skýringar sveitarfélagsins að frekari gögn séu ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að upplýsingaréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um að ef ákvæði 6.–10. gr. laganna eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upplýsingarétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir enn fremur að réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa fullyrðingu Sveitarfélagsins Voga um að gögn með þeim upplýsingum sem kærendur óska eftir liggi ekki fyrir í vörslum sveitarfélagsins. Skýringar Sveitarfélagsins Voga og gögn málsins að öðru leyti gefa ekki tilefni til að ætla að í vörslum sveitarfélagsins liggi fyrir frekari gögn sem heyri undir beiðni kærenda og ekki hafi verið afhent. Úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að skera úr um rétt til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum samkvæmt upplýsingalögum. Undir það fellur ekki að skera úr um hvort og þá hvernig stjórnvöld sinni skráningarskyldu sem á þeim hvílir samkvæmt upplýsingalögum og lögum um opinber skjalasöfn. Tekið skal fram að það kemur í hlut annarra aðila en úrskurðarnefndarinnar að hafa eftirlit með því hvernig sveitarfélög sinna skyldum sínum um skráningu og vistun gagna, sbr. 27. gr. upplýsingalaga. Vísast í þessu sambandi einkum til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og umboðsmanns Alþingis.
Að þessu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga verður lagt til grundvallar að gögn sem beiðni kærenda varðar liggi ekki fyrir hjá sveitarfélaginu. Þar af leiðandi liggja ekki fyrir gögn sem réttur þeirra gæti náð til og verður ákvörðun sveitarfélagsins því staðfest.
Úrskurðarorð
Staðfest er ákvörðun Sveitarfélagsins Voga, dags. 8. október 2025, um afgreiðslu á beiðni kærenda, […], […], […], […], Reykjaprents ehf., […], […] og […], dags. 18. ágúst 2025.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir