05 desember 2025

/

Aðgerðarpakki í málefnum fjölmiðla kynntur í ríkistjórn: Almenn kynning áætluð í desember

{image.Description}
Mynd: Myndabanki Stjórnarráðsins

Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti tillögur sínar að aðgerðum stjórnvalda í málefnum fjölmiðla á fundi ríkisstjórnar í dag. Tillögurnar byggja á fjölþættum úrræðum sem vinna saman að því að styrkja íslenskan fjölmiðlamarkað í heild sinni og efla samkeppnishæfni hans gagnvart alþjóðlegum tæknirisum.

Aðgerðirnar eru um tuttugu talsins og kalla á samvinnu við fleiri ráðuneyti. Sem hluti af hefðbundnu samráðsferli innan stjórnsýslunnar munu hlutaðeigandi ráðuneyti nú leggja lokahönd á aðkomu sína að aðgerðunum. Eins verður málið tekið upp í ráðherranefnd um ríkisfjármál.

Að loknu því ferli verða aðgerðirnar kynntar opinberlega og fyrirhugaðar lagabreytingar fara í opið samráðferli áður en þær koma síðan til kasta Alþingis, sem og mögulegar aðrar breytingar. Gengið er út frá því að unnt verði að kynna aðgerðirnar fyrir fjölmiðlum og almenningi síðar í mánuðinum en áhersla er lögð á að það verði eins fljótt og auðið er.