05 desember 2025

/

Til umsagnar: Drög að frumvarpi um viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.

{image.Description}
Lyfjaafgreiðsla

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi sem hefur að meginmarkmiði að veita Lyfjastofnun heimildir til að bregðast við lyfjaskorti. Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti samhljóma frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi (þskj. 289, 257. mál.) en þó með breytingum sem raktar eru í greinargerð. Umsagnarfrestur er til 2. janúar.

Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er lyfjaskortur viðvarandi vandamál í heiminum og skortur á lyfjum vaxandi ógn við lýðheilsu sem grefur undan rétti sjúklinga til aðgangs að viðeigandi læknismeðferð. Margar ástæður geta verið fyrir lyfjaskorti og kallar staða Íslands sem örmarkaðar á ýmsar sértækar aðgerðir. Heimildirnar snúast einkum um að stýra eða takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja eftir því sem aðstæður krefjast, líkt og fjallað er um í greinargerð með frumvarpinu. Við smíði frumvarpsins var horft til þeirra heimilda sem lyfjastofnanir annars staðar á Norðurlöndunum hafa og einnig litið til lærdóms af COVID-19 faraldrinum hér á landi.

Frumvarpsdrögin innihalda einnig ákvæði sem veitir lyfjafræðingum heimild til að ávísa bóluefnum og öðrum lyfjum sem nauðsynleg eru í tengslum við bólusetningar. Þá er lagt til að lyfjafræðingum verði heimilt, í sérstökum tilvikum og í samræmi við ákvörðun Lyfjastofnunar, að ávísa tilteknum undanþágulyfjum í stað lyfja sem skortir. Enn fremur er að finna heimild sem gerir ráðherra kleift að útvíkka ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Ekki hefur verið til ákvörðun á þessu stigi um slíka aukna heimild en verið er að vinna tillögur, í samráði við fagfélög hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og lækna, en framkvæmd slíkra tillagna er háð því að frumvarp þetta verði samþykkt sem lög af Alþingi.

Lagðar eru til margþættar breytingar vegna gagnagrunna og kerfa á sviði lyfjamála sem rekja má til  áforma heilbrigðisráðuneytisins um sameiningu á þróun stafrænna heilbrigðislausna og rafrænna kerfa innan heilbrigðiskerfisins.

Sjá einnig: