09 desember 2025
/
Flutningur gæludýra í farþegarými flugvéla heimill
Til að flytja megi gæludýr til landsins þarf að vera fyrirliggjandi innflutningsleyfi sem Matvælastofnun gefur út. Við komu til landsins skulu dýrin einnig afhent til einangrunar samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar.
Ákvæðum um hjálpar- og sprengjuleitarhunda hefur einnig verið breytt í fyrrgreindri reglugerð en framvegis er heimaeinangrun slíkra hunda heimil.
Reglugerðardrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust ellefu umsagnir.
Umræddar breytingar eru mikilvægar út frá sjónarmiðum dýravelferðar, dýr upplifa minni streitu og álag ef þau ferðast með eiganda sínum fremur en í farangursrými eða vöruflutningum. Breytingarnar eru jafnframt til samræmis við reglur víða erlendis þar sem flutningur gæludýra í farþegarými er heimill án þess að það bitni á smitvörnum, enda eru gæðakröfur og vottanir flugfélaga og yfirvalda skýrar.
Breytingarnar stuðla einnig að auknum sveigjanleika fyrir gæludýraeigendur og tryggja áframhaldandi fjölbreytni og heilbrigði hunda- og kattategunda á Íslandi. Þannig er tekið tillit til hagsmuna gæludýra og eigenda þeirra auk þess að verndun genamengis hunda- og kattategunda er tryggð til framtíðar.
Upplýsingar á vef Matvælastofnunar um innflutning dýra.