09 desember 2025

/

Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og viðbrögð við öryggisógnum efst á baugi á ráðherrafundi ÖSE

{image.Description}
Frá ráðherrafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vínarborg.

Ráðherrafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fór fram í Vínarborg dagana 4. og 5. desember og sótti Helga Hauksdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni, fundinn í fjarveru utanríkisráðherra. Virðing fyrir grundvallarreglum öryggis, lýðræðis og mannréttinda, viðbrögð við öryggisógnum á ÖSE-svæðinu, þ.e. innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, voru meginviðfangsefni fundarins. 

Þá ræddu aðildarrríkin framtíðarnálgun ÖSE gagnvart öryggi, lýðræði og mannréttindum um leið og þau minntust undirritunar Helsinki-sáttmálans fyrir 50 árum.

Í ávarpi Íslands fordæmdi fastafulltrúi Íslands ólöglega allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu og þá sérstaklega brot rússneskra stjórnvalda á alþjóðalögum og gagnvart framtíð Úkraínu með því að nema á brott úkraínsk börn. Var kallað eftir því í ávarpinu að Rússland verði látið sæta ábyrgð á þessu fyrirlitlega athæfi sem og öðrum gjörðum sínum. Þá var lýst áhyggjum af stöðu mannréttinda í Belarús og að Georgía hafi sveigt af leið sinni í átt að lýðræði, en að sama skapi var fagnað staðfestu moldóvsku þjóðarinnar við uppbyggingu lýðræðislegs samfélags.

Ísland tók jafnframt undir nokkrar sameiginlegar yfirlýsingar, meðal annars um mannréttindi og grundvallarréttindi, árásir á orkuinnviði í Úkraínu, öryggi blaðamanna og yfirlýsingu vinahóps lýðræðisafla í Belarús. Þá voru fluttar sameiginlegar yfirlýsingar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um Georgíu og Úkraínu.

Ísland studdi tvo hliðarviðburði á ráðherrafundinum. Annars vegar viðburð er fjallaði um réttlæti fyrir brottnumin úkraínsk börn og fjölskyldur þeirra, og hins vegar viðburð um lýðræðislega framtíð Belarús þar sem Svietlana Tsihanouskaya, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, var gestur. 

Fastafulltrúi lagði einnig lóð á vogarskálarnar í átaki sem mannréttindasamtökin ZMINA og Ukrainian Legal Advisory Group stóðu fyrir til að þrýsta á um lausn þriggja starfsmanna ÖSE, sem Rússnesk yfirvöld hafa haft í haldi frá árinu 2022.