09 desember 2025
/
Nr. 926/2025 Úrskurður
Hinn 9. desember 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 926/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25080034
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. ágúst 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 3. ágúst 2025, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 8. júlí 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 23. júní 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fjögurra daga dvöl frá 3. til 6. ágúst 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 8. júlí 2025, og heimilaði kæranda 30 daga dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 3. ágúst til 16. september 2025. Kærandi kom til Íslands 3. ágúst 2025, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. samdægurs, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu þær athugasemdir að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a-, og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að áritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti þar sem ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun. Þar af leiðandi sé áritunin ekki gild.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 6. ágúst 2025, hafi hinn 3. ágúst s.á. verið óskað eftir aðstoð við landamærahlið í komusal á Keflavíkurflugvelli vegna kæranda en hann hafi komið með flugi frá Bretlandi. Kærandi hafi verið á ferð með vini sínum en fjallað er um mál vinar kæranda í úrskurði nr. 927/2025. Kærandi hafi greint lögreglu frá ætlun sinni að dvelja í fjóra daga áður en hann færi aftur til Bretlands með flugi 6. ágúst 2025. Hann hafi ætlað að skoða eldfjall. Kærandi og vinur hans hefðu áður ætlað að gista á hóteli en það hafi reynst of kostnaðarsamt. Þeir hafi því bókað nýja gistingu og vísaði kærandi til vinar síns varðandi bókunarstaðfestingu. Kærandi hafi sýnt fram á nægt fjármagn til fyrirhugaðrar dvalar. Aðspurður væru þeir enn að leita að pakkaferðum með leiðsögn um Ísland en hefðu ekki fundið réttu ferðina. Í samantekt lögreglu kemur fram að samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi hann ætlað að dvelja frá 3. til 6. ágúst 2025 og skoða náttúruperlur landsins. Hafi hann jafnframt ætlað í skoðunarferð um Reykjavík og Gullna hringinn. Með umsókninni fylgdi staðfesting á flugi til og frá landinu ásamt bókun á hóteli í Reykjavík. Lögregla hafi haft samband við hótelið sem hafi staðfest að bókunin hefði ekki verið greidd. Þá hefði flugfélagið staðfest að kærandi ætti ekki bókaðan farmiða í flug til Lundúna 6. ágúst 2025. Þar sem ljóst var að tilgangur ferðarinnar væri ekki í samræmi við það skipulag og ferðaáætlun sem umsókn um vegabréfsáritun hafi grundvallast á tók lögregla ákvörðun um ógildingu áritunarinnar og frávísun frá landinu, sbr. a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi svo farið með flugi til Bretlands 4. ágúst 2025.
Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 5. ágúst 2025 og bárust gögn frá kæranda 18. ágúst 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 1. september og 10. nóvember 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. október 2025. Greinargerð kæranda barst 31. október 2025 ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi byggir á því að umsókn hans hafi endurspeglað raunverulegar áætlanir hans um að ferðast til Íslands. Rökstuðningur lögreglu byggi á tveimur stoðum, annars vegar breytingum á ferðaáætlun og hins vegar niðurstöðu úr símtali við flugfélag. Að mati kæranda standist það ekki áskilnað 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir enda ber samkvæmt ákvæðinu að byggja mat á því hvort vegabréfsáritun hafi verið fengin „með sviksamlegum hætti“ á huglægu ástandi kæranda þegar hann lagði fram umsókn sína. Hugtakið feli í sér ásetning til að blekkja. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi haft slíkan ásetning í upphafi. Bókun hagstæðari gistingar sé eðlileg og algeng breyting ferðaáætlunar og geti ekki talist til marks um svik. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 760/2023, dags. 13. desember 2023, til glöggvunar.
Þá sé þeirri ályktun lögreglu að kærandi hafi veitt rangar upplýsingar um heimför hafnað sem órökstuddri. Sú ályktun hafi byggst á einu símtali lögreglu við flugfélag. Kærandi hafi lagt fram flugáætlun frá tiltekinni ferðaskrifstofu. Sú staðreynd að kærandi hafi komið til landsins með flugi sem tilgreint hafi verið í skjalinu styrkir trúverðugleika skjalsins. Skjóti þannig skökku við að leggja til grundvallar að upplýsingar um flug sem fram komi í sömu áætlun hafi verið rangar. Að mati kæranda sé sennilega um misbrest í upplýsingagjöf á milli ferðaskrifstofu og flugfélags að ræða. Hafi lögregla vanrækt rannsóknarskyldu sína með því að kanna þetta atriði ekki frekar.
Kærandi vísar einnig til handbókar Evrópusambandsins um vegabréfsáritanir (e. Visa Code Handbook) sem kærunefnd líti til sem lögskýringagagns við túlkun reglna um vegabréfsáritanir, sbr. t.d. úrskurð nefndarinnar nr. 236/2023, dags. 19. apríl 2023. Samkvæmt leiðbeiningum sem fram komi í handbókinni geti ferðamenn gert breytingar á ferðaáætlun eftir útgáfu vegabréfsáritunar. Breyting á gistingu eða ferðaleið geti ekki sjálfkrafa leitt til ógildingar áritunar. Breytingar þurfi að vera þess eðlis að þær varpi ljósi á ástandið eins og það hafi verið við umsókn og veki rökstuddan grun um að grundvallarskilyrði fyrir útgáfu hafi aldrei verið uppfyllt eða að um sviksamlegan ásetning hafi verið að ræða. Meginreglan sé sú að svo fremi sem grunnskilyrði fyrir útgáfu áritunar séu uppfyllt beri að heimila komu. Með grunnskilyrðum eigi kærandi við um tilgang ferðar, lengd dvalar, og aðaláfangastað. Í máli kæranda sé um að ræða smávægilega breytingu á upphaflegri ferðaáætlun. Framangreind grunnskilyrði séu að öllu leyti óbreytt frá umsókn um vegabréfsáritun. Hafi því ekki verið heimilt að ógilda vegabréfsáritun hans og vísa honum frá landinu á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir einnig á því að hann hafi leitt líkur að tilgangi dvalar og því hafi ekki verið heimilt að frávísa honum á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Óumdeilt sé að ferðaáætlun kæranda hafi tekið breytingum en breytingin eigi sér eðlilegar og haldbærar skýringar. Það sé eðlileg og algeng ráðstöfun að finna sér hagstæðari gistingu og almennt tíðkast að ferðamenn bóki hótel með möguleika á endurgreiðslu eða afbókun án kostnaðar til þess að hafa sveigjanleika. Grundvallartilgangur ferðarinnar hafi verið óbreyttur og dagsetningarnar þær sömu. Þó gild vegabréfsáritun sé nauðsynleg forsenda fyrir landgöngu veiti hún ekki ein og sér rétt til komu. Endanleg ákvörðun um hvort komuskilyrði séu uppfyllt sé tekin af landamæravörðum við ytri landamæri. Sú skylda hvíli á útlendingi að leiða líkur að tilgangi dvalar miðast við aðstæður og upplýsingar sem liggi fyrir við komu. Geti breyting á ferðaáætlun því ekki ein og sér verið grundvöllur frávísunar. Kærandi hafi gert rækilega grein fyrir breyttum áformum sínum. Hafi lögregla vanrækt þá skyldu sína að leggja heildstætt mat á aðstæður hans við komuna. Við komu til landsins hafi kærandi veitt upplýsingar og framvísað gögnum sem tilgreind séu í 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri og þannig leitt líkur að uppgefnum tilgangi dvalar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framangreindu sé hin kærða ákvörðun haldin verulegum efnis- og formannörkum sem brjóti í bága við grundvallarreglur stjórnsýsluréttarins.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 8. júlí 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu í allt að 30 daga á tímabilinu 3. ágúst til 16. september 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 3. ágúst 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu þær athugasemdir að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar sem veittar hafi verið með umsókn um vegabréfsáritun.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.
Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um vegabréfsáritun 23. júní 2025. Hafi hann ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 3. til 6. ágúst 2025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn, s.s. hótelgistingu fyrir umrætt tímabil, staðfestingu flugbókana og ferðaáætlun. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands, 3. ágúst 2025, hafi þær forsendur þó ekki staðist þar sem ekki hafi reynst unnt að staðfesta flugbókun kæranda til Bretlands að nýju.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verði því að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna.
Í málinu liggur fyrir fullyrðing kæranda um flugbókun til Bretlands 6. ágúst 2025. Í samantekt lögreglu kemur fram að lögregla hafi haft samband við umræddan flugrekanda sem hafi staðfest að kærandi ætti ekki bókaðan farmiða í umrætt flug. Meðal gagna málsins er tölvubréf fulltrúa flugfélagsins þar að lútandi. Samkvæmt framansögðu byggðist framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni á röngum forsendum. Farmiði til heimferðar eða bókun slíks miða er meðal undirstöðugagna sem útlendingar þurfa að leggja fram til þess að sýna fram á ásetning um að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna að ferð lokinni. Án haldbærra gagna um heimferð hefði kæranda verið synjað um útgáfu vegabréfsáritunar í öndverðu. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 3. ágúst 2025 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 8. júlí 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 3. ágúst 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Í ákvörðun lögreglu um frávísun kemur fram að vegabréfsáritun kæranda hafi verið ógild. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun á þeim forsendum að hann hygðist dvelja hér á landi í fjóra daga, frá 3. til 6. ágúst 2025. Með umsókn hafi kærandi lagt fram bókun á gistingu fyrir umrædda daga auk flugmiða. Hjá lögreglu hafi kærandi síðan greint frá nýrri gistibókun auk breyttrar ferðaáætlunar. Ekki hafi reynst unnt að staðfesta flugbókun kæranda til Bretlands 6. ágúst 2025. Meðal meginskilyrða 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er framlagning gagna varðandi heimferð, s.s. með framlagningu farmiða. Kærandi hafi ekki getað sýnt fram á framangreint og er skilyrðum reglugerðarákvæðisins því ekki fullnægt. Með vísan til framangreinds hefur kærandi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Í málatilbúnaði kæranda eru gerðar athugasemdir við meðferð málsins, m.a. varðandi 10. gr. stjórnsýslulaga. Ekki er gerð athugasemd við framangreint í málsmeðferð lögreglu. Að virtum gögnum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a-, og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Athugasemdir við málsmeðferð lögreglu
Hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og afturköllun vegabréfsáritunar fjalla um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í hinum kærðu ákvörðunum er ekki að finna frekari rökstuðning fyrir töku þeirra annan en að hakað er við á hvaða synjunar- og afturköllunarástæðu er byggt í stöðluðum ákvarðanaeyðublöðum. Að öðru leyti kom ekki fram hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirra niðurstaðna eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvarðananna að undanskildum þeim stuttu athugasemdum að ferðaáætlun væri ekki í samræmi við upplýsingar úr umsókn um vegabréfsáritun. Verður því að líta svo á að með hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Þá eru leiðbeiningar í ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar áfátt en þar koma ekki fram fullnægjandi upplýsingar um kæruheimild, þ.e. um kærufrest og til hvaða stjórnvalds skuli beina kæru. Að þessu leyti voru hinar kærðu ákvarðanir ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindir annmarkar hafa þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson Vera Dögg Guðmundsdóttir