09 desember 2025
/
Stjórnvöld styðja við umræðu um kosti og galla Evrópusambandsaðildar
Til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og tryggja greiðan aðgang almennings að upplýsingum í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB, hyggjast stjórnvöld veita Evrópuhreyfingunni og Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fjárstyrk sem nemur tíu milljónum króna hvor.
Evrópuhreyfingin, sem hefur beitt sér fyrir aðild að ESB, og Heimssýn, sem er mótfallin Evrópusambandsaðild, hafa um nokkurt skeið verið regnhlífarsamtök fyrir umrædd sjónarmið.
Fyrirhugað er að hreyfingarnar verji fjármagninu til verkefna á borð við fræðslu, greinarskrif og efnisgerð til birtingar á fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og skipulagningu funda og ráðstefna um kosti og galla aðildar að ESB.
„Í mínum huga er algjört lykilatriði að hér fari fram opin lýðræðisleg umræða um kosti og galla Evrópusambandsaðildar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, svo fólk geti tekið upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum og sannreyndum upplýsingum. Upphrópanir og hræðsluáróður sem ýta undir skautun eiga ekkert erindi í íslensku samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Með styrkveitingunni viljum við einmitt veita báðum hreyfingum bolmagn til þess að efla þessa mikilvægu lýðræðislegu umræðu.“
Að auki hefur verið ákveðið að fimm milljónir króna renni til Vísindavefs Háskóla Íslands til uppfærslu á Evrópuvefnum, sem haldið hefur verið úti um árabil og gegnt hefur mikilvægu hlutverki hvað varðar upplýsingagjöf um ESB og Evrópumál í breiðara samhengi. Vefurinn starfar eftir eigin stefnu og lútir ritstjórnarlegu sjálfstæði. Tilgangur hans er að veita hlutlægar, málefnalegar og trúverðugar upplýsingar um ESB; sögu þess, löggjöf sambandsins og réttarframkvæmd, skipulag og stjórnsýslu, stefnu og áætlanir.
Með fjáraukalögum fyrir 2025 var veitt sérstök fjárheimild til utanríkisráðuneytisins að fjárhæð 25 milljónir króna í undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fyrirhugað er að fari fram eigi síðar en árið 2027.