10 desember 2025
/
Fjórði fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025
Fjórði fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2025 fór fram mánudaginn 8. desember.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu almennt og helstu áhættuþættir ræddir.
Sérstaklega var fjallað um nýlegar breytingar á lánþegaskilyrðum og starfsemi nýrra fjármögnunarsjóða á íbúðamarkaði. Þá var rætt um nýja atvikamiðstöð fjármálainnviða sem rekin verður af RB og nýlegan öryggisbrest sem tengdist uppfærslu kerfa hjá sömu stofnun. Einnig gerði Seðlabankinn grein fyrir framvindu vinnu við mögulega greiðsluleið án nettengingar og stöðu vinnu við miðlægan innvið fyrir greiðslubeiðnir.
Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds frá síðasta fundi ráðsins. Uppfærðar skilaáætlanir hafa verið samþykktar fyrir kerfislega mikilvægu bankana og Kviku.