10 desember 2025
/
Mál nr. 480/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 480/2025
Miðvikudaginn 10. desember 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 8. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. maí 2025, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. maí 2025, var kæranda tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024. Niðurstaðan var sú að kærandi hefði ekki átt rétt á neinum greiðslum á árinu 2024. Undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefndinni sendi Tryggingastofnun kæranda bréf, dags. 29. ágúst 2025, þar sem hún var upplýst um að yrði upplýsingum í staðgreiðsluskrá breytt myndi Tryggingastofnun endurskoða endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024 í samræmi við það. Staðgreiðsluskrá kæranda var í kjölfarið breytt og með bréfi, dags. 31. október 2025, var kæranda tilkynnt um nýjan endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024. Niðurstaðan var sú að kærandi hefði fengið vangreiddar bætur að fjárhæð 429.731 kr. að teknu tilliti staðgreiðslu skatta.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 12. ágúst 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 29. ágúst 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að Tryggingastofnun hefði ákveðið að endurupptaka málið. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 3. september 2025, sem var ítrekað 17. september 2025. Með tölvupósti 19. september 2025 tilkynnti kærandi úrskurðarnefndinni að gögnunum yrði skilað til Tryggingastofnunar fljótlega. Með tölvupósti 23. september 2025 óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum um hvort kærandi vildi þá afturkalla kæru, en engin svör bárust frá kæranda. Með tölvupósti til Tryggingastofnunar 14. október 2025 óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum um hvort Tryggingastofnun hefði tekið nýja ákvörðun í málinu og fékk þau svör sama dag að svo væri ekki, þar sem engin göng hefðu borist frá kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir greinargerð frá Tryggingastofnun með bréfi, dags. 15. október 2025. Tryggingastofnun óskaði eftir frávísun á ný með þeim rökum að stofnunin hefði tekið nýja ákvörðun í málinu. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 4. nóvember 2025. Engin svör bárust frá kæranda.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kærandi hafi fengið endurhæfingalífeyri fyrir tímabilið nóvember 2024 til maí 2025. Kærandi hafi unnið svolítið hjá fyrirtæki föður síns á árinu 2024 en launaseðlar hafi einungis verið gerðir í nóvember og desember fyrir allt árið, þrátt fyrir að hún hafi unnið svolítið yfir allt árið. Faðir kæranda hafi talað við Tryggingastofnun ríkisins vegna þessa og honum hafi verið sagt að þetta skipti ekki máli því launum ársins yrði dreift jafnt á alla mánuði ársins. Greiðslur vegna 2024 myndu skila sér í maí eða júní 2025 þegar skattframtöl væru tilbúin. Samt hafi kærandi ekkert fengið borgað fyrir nóvember og desember 2024 en hefði átt að fá greitt miðað við upplýsingarnar frá Tryggingastofnun. Kærandi vilji því að þetta verði endurákvarðað þannig að launin dreifist á alla 12 mánuði ársins 2024, þ.e. 187.500 kr. á mánuði, og kærandi fái bætur greiddar í samræmi við það.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins frá 29. ágúst 2025 kemur fram að með bréfi, dags. 15. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar um endurhæfingarlífeyri hefði verið samþykkt. Skilyrði greiðslna hafi verið talin uppfyllt frá 1. nóvember 2024 til 31. maí 2025. Með bréfi, dags. 15. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2024. Niðurstaðan hafi verið sú að kærandi hefði ekki átt rétt á neinum greiðslum á árinu 2024 vegna tekna.
Í kjölfar kærunnar hafi Tryggingastofnun ákveðið að endurskoða fyrri ákvörðun og óska eftir frekari gögnum, sbr. bréf frá 29. ágúst 2025. Þar sem Tryggingastofnun hafi ákveðið að endurupptaka málið óski stofnunin eftir því að kærumálinu verði vísað frá.
Í greinargerð Tryggingastofnunar frá 31. október 2025 segir að nú liggi fyrir nýjar upplýsingar í staðgreiðsluskrá skattyfirvalda um dreifingu launatekna kæranda á árinu 2024. Tryggingastofnun hafi því ákveðið að endurreikna uppgjör tekjutengdra greiðslna kæranda á árinu 2024 í samræmi við þessar nýju upplýsingar, sbr. bréf dags. 31. október 2025.
Þar sem Tryggingastofnun hafi ákveðið að taka nýja ákvörðun í málinu óski stofnunin eftir því að kærumáli þessu verði vísað frá.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. maí 2025, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024, þar sem niðurstaðan var sú að kærandi hefði ekki átt rétt á neinum greiðslum á árinu. Undir rekstri málsins leiðbeindi Tryggingastofnun kæranda með bréfi, dags. 29. ágúst 2025, um að yrði upplýsingum í staðgreiðsluskrá skattyfirvalda um tekjur breytt myndi Tryggingastofnun endurskoða endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024 í samræmi við það. Með bréfi, dags. 31. október 2025, var kæranda tilkynnt um nýjan endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2024, þar sem niðurstaðan var að kærandi hefði fengið vangreiddar bætur að fjárhæð 429.731 kr., að teknu tilliti staðgreiðslu skatta. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar, en engin svör bárust frá kæranda.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á sem grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Kærandi óskaði eftir því í kæru að endurreikningi Tryggingastofnunar yrði breytt þannig að laun hennar myndu dreifast á alla 12 mánuði ársins 2024, þ.e. 187.500 kr. á mánuði, og kærandi fengi bætur greiddar í samræmi við það. Af ákvörðun Tryggingastofnunar, dags. 31. október 2025, verður ráðið að við endurreikninginn hafi verið miðað við framangreindar forsendur, þ.e. launatekjur að fjárhæð 187.500 kr. á mánuði fyrir nóvember og desember 2024. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir