10 desember 2025

/

Mál nr. 641/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 641/2025

Miðvikudaginn 10. desember 2025

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 3. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. júlí 2025 um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna og endurkrefja hana um ofgreitt meðlag. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 4. júlí 2025, var kæranda tilkynnt um stöðvun milligöngu meðlagsgreiðslna með syni hennar og endurkröfu ofgreidds meðlags frá 11. október 2024 í samræmi við úrskurð sýslumannsins á B, dags. 30. júní 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. október 2025. Með bréfi, dags. 6. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 31. október 2025, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. nóvember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærð sé ákvörðun Tryggingstofnunar vegna úrskurðar sýslumannsins á B um stöðvun meðlags.

Sonur kæranda hafi klárað skóla í Reykjavík 12. maí 2025 og hafi alfarið verið fluttur aftur í C á lögheimilið sitt þar þann 14. maí 2025 þar sem hann búi enn. Sonur kæranda hafi […] og stundi nám við Menntaskólann í C.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun um stöðvun á meðlagsskyldu föðurs frá 11. október 2024.

Í 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. ekki við.

Samkvæmt 65. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé sýslumanni heimilt að breyta meðlagsúrskurði stjórnvalds eða ákvörðun um meðlag, sem tekin hafi verið með dómi, ef rökstudd krafa komi fram um það, enda sé sýnt fram á að hagir foreldra eða barns hafi breyst.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns um meðlag eða samningi foreldra um meðlag staðfestum af sýslumanni, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemi einföldu meðlagi.

Í reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærslulaga komi fram í 8. gr. að meðlagsgreiðslur falli niður frá þeim degi er barn verði 18 ára. Greiðslur skuli einnig falla niður í þeim tilfellum er breyting sé gerð á meðlagsákvörðun sem leiði til þess að greiðsluheimild sé ekki lengur til staðar.

Barnsfaðir kæranda hafi sent Tryggingastofnun úrskurð frá Sýslumanninum á B, þar sem fram komi að meðlagsskylda hans hafi verið felld niður frá og með 11. október 2024.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 4. júlí 2025, að greiðslur meðlags til hennar hafi verið stöðvaðar frá 11. október 2024 vegna breyttrar meðlagsskyldu.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 42. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags. Þá beri stofnuninni að stöðva greiðslur meðlags ef breyting sé gerð á meðlagsákvörðun sem leiði til þess að greiðsluheimild sé ekki lengur til staðar, sbr. 4. tölul. 8. gr. reglugerðar nr. 945/2009.

Tryggingastofnun hafi borist nýr úrskurður frá Sýslumanninum á B þar sem fram komi að meðlagsskylda barnsföður kæranda hafi verið felld niður frá og með 11. október 2024. Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til þess að stöðva milligöngu um meðlag samkvæmt nýjum úrskurði. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna.

Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og úrskurði úrskurðarnefndar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda og krefja hana um endurgreiðslu frá 11. október 2024.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 65. gr. barnalaga er sýslumanni heimilt að breyta meðlagsúrskurði stjórnvalds eða ákvörðun um meðlag, sem hafi verið tekin með dómi, ef rökstudd krafa kemur fram um það, enda sé sýnt fram á að hagir foreldra eða barns hafi breyst.

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildi þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Í 44. gr. sömu lagagreinar segir m.a. að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar þar sem meðal annars sé kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn séu búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun inni af hendi.

Með framangreindri lagastoð hefur reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga verið sett. Í 8. gr. reglugerðarinnar segir að meðlagsgreiðslur falli niður í þeim tilfellum þegar breyting hafi verið gerð á meðlagsákvörðun sem leiði til þess að greiðsluheimild sé ekki lengur til staðar. Um ofgreiðslu er fjallað í 16. gr. reglugerðarinnar. Ákvæðið hljóðar svo:

„Hafi Tryggingastofnun ofgreitt meðlagsmóttakanda meðlag eða önnur framfærsluframlög samkvæmt reglugerð þessari á stofnunin endurkröfurétt samkvæmt almennum reglum. Einnig skal stofnunin tilkynna Innheimtustofnun sveitarfélaga um leiðréttingu á greiðslum.“

Með hliðsjón af framangreindu ber Tryggingastofnun að hafa milligöngu um greiðslu meðlags í samræmi við lögformlega meðlagsákvörðun, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að Tryggingastofnun ríkisins hefur haft milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda þar til að barnsfaðir hennar lagði fram úrskurð sýslumannsins á B, dags. 11. október 2024, þess efnis að meðlagsskylda hans hafi verið felld niður frá og með 11. október 2024. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir milligöngu Tryggingastofnunar á meðlagsgreiðslum frá 11. október 2024. Þá á Tryggingastofnun endurkröfurétt samkvæmt almennum reglum hafi stofnunin ofgreitt meðlag, sbr. 16. gr. reglugerðar nr. 945/2009.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar um að stöðva milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda frá 11. október 2024 og endurkrefja hana um ofgreitt meðlag.

Kærandi byggir á því að sonur hennar hafi aftur flutt til hennar 14. maí 2025. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefndin rétt að benda kæranda á að hún geti lagt fram beiðni til sýslumanns um breytingu á meðlagsúrskurði, sbr. 65. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna og um endurkröfu ofgreidds meðlags til A, er staðfest.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir