11 desember 2025

/

Mál nr. 593/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 593/2025

Fimmtudaginn 11. desember 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. september 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. júní 2019, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. júní 2019, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 1.399.727 kr. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. september 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 17. nóvember 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi nýlega komið aftur til Íslands eftir langt tímabil erlendis. Því miður hafi verið tekið á móti honum með skuld upp á meira en eina milljón króna vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi verið gert að endurgreiða allar atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið áður en hann hafi farið frá Íslandi. Kærandi hafi ekki einu sinni fengið tækifæri til að útskýra málið þar sem hann hafi ekki verið á Íslandi og ekki verið upplýstur um stöðuna.

Kærandi tekur fram að á því tímabili sem hann hafi fengið atvinnuleysisbætur á Íslandi hafi hann verið búsettur hér í samræmi við gildandi reglur. Kærandi hafi ekki dvalið erlendis á meðan hann hafi fengið bætur, nema í lok bótatímabilsins þegar hann hafi nýtt löglega heimilaðan flutning atvinnuleysisréttinda til B samkvæmt U2 ferlinu.

Í júní 2019 hafi kærandi þegar verið fluttur varanlega frá Íslandi og skráður úr landinu. Hann hafi ekki haft neinn aðgang að póstinum sem hafi verið sendur og því verið ómeðvitaður um stjórnvaldsákvörðunina eða möguleikann á að áfrýja innan tilskilins frests. Með vísan til þess óski kærandi eftir skilningi og að skuldin verði felld niður.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. júní 2019, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 1.399.727 kr.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. júní 2025, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 18. september 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir