11 desember 2025
/
Opnað fyrir styrki til tæknilausna vegna losunar stóriðju
Opnað hefur verið fyrir styrki frá Loftslags- og orkusjóði til nýsköpunar og tækniþróunar vegna verkefna sem stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið.
Þetta er gert samkvæmt tilmælum Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og á grundvelli reglugerðarbreytingar sem hann undirritaði í nóvember. Alls eru 400 milljónir króna til úthlutunar, en styrkupphæð fyrir hvert verkefni getur að hámarki numið 200 milljónum króna til allt að þriggja ára.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Stóriðjuuppbygging hefur verið lykillinn að því að skapa sterkt og samkeppnishæft raforkukerfi á Íslandi. Nú er að hefjast nýr kafli í stóriðjusögunni, þar sem verksmiðjur eru ekki aðeins knúnar endurnýjanlegri orku heldur ýtum við líka markvisst undir fjölnýtingu auðlindastrauma og föngun kolefnis úr framleiðsluferlinu. Þannig stuðlum við að aukinni samkeppnishæfni stóriðjunnar og verðmætasköpun á sjálfbærum grunni.“
Styrkhæfar teljast umsóknir um þróun á hvers kyns tækni sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið.
Einnig verður litið til eftirfarandi þátta:
- Að verkefnið hagnýti grunnþekkingu sem þegar er til staðar
- Verkefnið beinist að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun
- Að verkefnið hafi möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og hafi áhrif út fyrir einstaka fyrirtæki, félagasamtök og/eða stofnun
Gerð er krafa um að tveir samstarfsaðilar að lágmarki standi að hverju verkefni og skal að minnsta kosti annar þeirra vera fyrirtæki. Þá verður horft til þess að forgangsraða verkefnum sem skila mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda (koldíoxíð-ígilda) á hverja styrkkrónu.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2026, kl 15:00. Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Sækja um styrk
Almennum spurningum varðandi styrkumsóknir sem eru í matsferli skal beint til l[email protected].
Nánari upplýsingar:
Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum