11 desember 2025
/
Tölfræði íþrótta
Íþróttaiðkun er hagsmunamál allra landsmanna. Hlutverk íþrótta í að fyrirbyggja sjúkdóma og í forvörnum er ótvírætt. Þær skapa jafnframt samstöðu og fyrirmyndir fyrir framúrskarandi árangur. Því er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir íþróttaiðkun hérlendis og fylgjast með þróuninni.
Ýmsum tölfræðiupplýsingum er safnað af mismunandi aðilum um íþróttaiðkun og hreyfingu. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur opnað síðu á vef Stjórnarráðsins þar sem hægt er að nálgast tölfræði um íþróttir frá ýmsum aðilum. Markmiðið er að draga fram stöðu íþrótta og þá fjölbreyttu vettvanga þar sem tölfræðiupplýsingar er að finna.
Hér eru fáein atriði dregin fram.
Vinsælustu íþróttagreinarnar
Fimm vinsælustu íþróttagreinarnar á árinu 2024 í fjölda skráðra iðkenda voru:
- Knattspyrna - 32.108
- Golf - 28.045
- Fimleikar - 16.182
- Hestaíþróttir - 13.944
- Körfuknattleikur - 10.111
Mat barna á eigin hreyfingu og heilsu
Á árinu 2025 segjast börn í 6. bekk í 27% tilfella hafa stundað líkamlega hreyfingu samanlagt í 60 mínútur eða meira á dag 7 daga af síðustu 7 dögum. Hlutfallið hjá 10. bekk er 20%. Spurð út í líkamlega heilsu segjast 90% barna í 6. bekk vera við góða eða mjög góða heilsu. Börn í 10. bekk svara sömu spurningu hins vegar á þann veg að 82% drengja og 72% stúlkna segjast vera við góða eða mjög góða heilsu.
Kynjaskipting og -jafnrétti
Konur eru 40,6 % íþróttaiðkenda en karlar 59,4%. Þegar aldurssamsetning iðkenda er skoðuð má sjá að íþróttaiðkun kvenna hrapar á fullorðinsárunum. Af allri íþróttaiðkun er eingöngu 15,4% meðal kvenna 18 ára og eldri en 25,1% meðal kvenna 17 ára og yngri. Til samanburðar er hlutfall karla af heildaríþróttaiðkun 31,1% meðal karla 17 ára og yngri og 28,3% meðal karla 18 ára og eldri.
Þegar horft er til kynjajafnréttis í íþróttum er staða Íslands almennt nokkuð góð í alþjóðlegum samanburði. Þó er enn töluverður kynjahalli þegar kemur að æðstu embættum innan íþróttahreyfingarinnar og meðal afreksþjálfara.
Heimildir
Fyrrgreindar upplýsingar eru fengnar frá Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), úr Íslensku æskulýðsrannsóknin (ÍÆ).
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur utan um tölfræði iðkunar íþrótta úr starfsskýrslum íþróttahreyfingarinnar. Starfsskýrslum ber að skila fyrir 15. apríl ár hvert vegna starfsemi undangengins árs. Tölfræðin er birt með gagnvirkum hætti á vef ÍSÍ þar sem hægt er að skoða þátttöku í íþróttum út frá ýmsum breytum.
Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) er rannsókn sem HÍ framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Markmiðið með framkvæmd rannsóknarinnar er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun. Frá skólaárinu 2021-2022 er könnunin lögð fyrir á hverju ári í grunnskólum, annað hvert ár í framhaldsskólum og fjórða hvert ár verður framkvæmd símakönnun meðal ungs fólks utan skóla. Nýjasta ÍÆ könnunin sem búið er að birta er grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem framkvæmd var á meðal nemenda í 4.-10. bekk grunnskóla í febrúar – apríl 2025. Þátttakendur komu úr 155 skólum samtals 29.994 nemendur sem eru 88% allra nemenda í þeim bekkjum.
Kynjajafnrétti í íþróttum er viðfangsefni samstarfsverkefnis Evrópuráðsins og Evrópusambandsins. Þar eru til skoðunar sex vísar um kynjajafnrétti í íþróttum. Könnun var framkvæmd árið 2019 og aftur árið 2023.