12 desember 2025
/
Ytra mat hafið í framhaldsskólum með nýjum gæðaviðmiðum
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hafið framkvæmd ytra mats á framhaldsskólum samkvæmt nýjum gæðaviðmiðum sem kynnt voru í haust. Um er að ræða endurbætt verklag sem mótast hefur í samráði við skólasamfélagið og tekur mið af væntingum um að ytra mat framhaldsskóla sé umbóta- og þróunarmiðað.
Nýju viðmiðin eru liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á framkvæmd innra og ytra mats og menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Áhersla er á faglegt gæðastarf, samstarf og virka þátttöku starfsfólks, og samspil innra og ytra mats.
Menntaskólinn að Laugarvatni var fyrsti framhaldsskólinn til að fá ytra mat á grundvelli nýrra gæðaviðmiða. Vonir standa til þess að ný gæðaviðmið og reglubundnari úttektir á framhaldsskólum styðji enn betur við gæði náms og kennslu.