15 desember 2025

/

Netöryggisæfing til að efla viðbragðsgetu bandalagsríkja gegn fjölþáttaógnum

{image.Description}
Hluti æfingarinnar fór fram í samhæfingarstöð Almannavarna.

Ísland tók nýverið þátt í fjölþjóðlegu netöryggisæfingunni Cyber Coalition 2025, sem haldin hefur verið árlega frá árinu 2008 á vegum Atlantshafsbandalagsins. Markmið hennar er að efla samvinnu og viðbragðsgetu þjóða gegn net- og fjölþáttaógnum, en að þessu sinni tóku lið frá 35 aðildar- og samstarfsríkjum bandalagsins þátt í æfingunni sem fram fór dagana 28. nóvember til 4. desember sl.

Lið frá Íslandi, undir leiðsögn CERT-IS, hefur nú þrívegis verið meðal þátttakenda en íslenski hópurinn var að þessu sinni skipaður sérfræðingum frá þrettán opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum; þ.e. Orkuveitunni, Landsneti, Isavia, Icelandair, Lögreglunni á Suðurnesjum, Nova, varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar, Farice, Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra ásamt fulltrúum frá CERT-IS og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. 

„Þátttaka okkar í æfingum sem þessari er mikilvægur liður í að styrkja netvarnir á Íslandi og eflir um leið samstarf opinberra aðila og einkageirans og getu þeirra til að verja mikilvæga innviði á Íslandi. Þá styrkir hún alþjóðlegt samstarf Íslands á þessu sviði, bæði á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og við önnur samstarfsríki,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Æfingin í ár samanstóð af þremur sviðsmyndum sem fólu í sér netárásir og önnur atvik sem tengjast fjölþáttaógum. Markmiðið hennar var meðal annars að æfa samhæfingu, samskipti og sameiginlega ákvarðanatöku innanlands þegar atvik koma upp á stuttum tíma og margþætt netvá stendur yfir. Þá var æfð tæknileg greining á netógnum í sýndarumhverfum. 

Þátttakendur voru sammála um að æfingin hefði skilað sér í bættu viðbragði og mæltu með áframhaldandi þátttöku á næsta  ári. CERT-IS mun nýta niðurstöður og draga lærdóm af æfingunni  til að bæta ferla enn frekar til undirbúnings fyrir næstu æfingu.