16 desember 2025

/

Menningarinnviðir á Austurlandi styrktir

{image.Description}
Austurbrú
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, Bryndís Fiona Ford, framkvæmdastjóri Austurbrúar - SSA, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, undirrituðu samninginn.

Nýr menningarsamningur milli ríkisins, Austurbrúar og sveitarfélaganna Múlaþings og Fjarðabyggðar var undirritaður í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði þann 11. desember síðastliðinn. Samningurinn miðar að því að styrkja menningarinnviði Austurlands og byggir á stuðningi við menningarmiðstöðvar landshlutans sem áður fylgdi Sóknaráætlun landshluta. Menningarstofa Fjarðabyggðar, Skaftfell á Seyðisfirði og Sláturhúsið menningarmiðstöð hafa áður notið stuðnings og nú bætist Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði við sem fjórða menningarmiðstöðin.

Í samningnum er kveðið á um aukinn fyrirsjáanleika í fjármögnun menningarmiðstöðvanna á Austurlandi og að framlag ríkisins aukist jafnt og þétt út samningstímann og verði orðið 76 milljónir króna árið 2029. Gert er ráð fyrir að framlag sveitarfélaganna muni einnig aukast í takt við framlag ríkisins. Með samningnum er rekstrargrundvöllurinn því tryggður til næstu ára.

„Ríkisstjórnin vill auka aðgengi þjóðarinnar að menningu óháð búsetu og efnahag. Með því er bæði átt við þátttöku í skapandi starfi og tækifæri til að sækja menningarviðburði. Við vitum að menning skiptir fólk máli, ekki síst þegar það velur sér stað til búsetu. Menning er ekki bara lífsgæði, menning er límið í hverju samfélagi - hvar sem við erum og hver sem við erum,“ segir Logi Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

„Ég legg áherslu á það sem menningarráðherra að byggja upp grundvallarinnviði menningar í hverjum landshluta. Að sama skapi tel ég mikilvægt að þegar ríkið eykur fjármagn til menningar á svæðinu skuldbindi sveitarfélögin sig líka til að leggja meira af mörkum til menningar. Þá getur fólk í hinum dreifðu byggðum jafnframt sótt í uppbyggingarsjóði og menningarsjóði til að fá fjármagn til verkefna þannig að þessir innviðir þjóni sínum tilgangi og nýtist sem best. Þetta tvennt virkar vel saman ef vel er haldið á spöðunum og ég hef fulla trú á að það verði raunin hér á Austurlandi. Ég sé að hér er unnið markvisst og stefnumiðað að menningarstarfinu sem hefur skilað góðri uppskeru.“

Unnið verður að menningarsamningum við fleiri landshluta á næstu árum en byrjað er á þeim svæðum sem lengst eru frá höfuðborgarsvæðinu.