17 desember 2025

/

Fimmtu úttektinni um varnir gegn spillingu lokið

{image.Description}
iStock
GRECO er skammstöfun fyrir samtök ríkja innan Evrópuráðsins sem berjast gegn spillingu

Samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO) hafa lokið fimmtu úttekt sinni á Íslandi um varnir gegn spillingu og eflingu heilinda hjá æðstu handahöfum framkvæmdarvalds og löggæsluyfirvöldum. 

Í skýrslunni, sem birt var opinberlega í dag, kemur fram að Ísland hafi innleitt með fullnægjandi hætti tilskilinn fjölda þeirra 18 tilmæla sem beint var að stjórnvöldum í fimmtu úttekt GRECO. Af þeim hafa 13 verið innleidd með að fullu og fjögur til viðbótar innleidd að hluta til.

Á grundvelli þessa telur GRECO ekki lengur þörf á áframhaldandi eftirfylgni vegna fimmtu úttektarinnar og er henni þar með formlega lokið gagnvart Íslandi.

Í skýrslu GRECO er tekið fram að Ísland hafi náð árangri á báðum sviðum, meðal annars með setningu laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, endurskoðun siðareglna, aukinni fræðslu og verklagsreglna innan lögreglu og Landhelgisgæslu Íslands. Þá er sérstaklega vísað til umbóta á sviði ráðninga og innra eftirlits innan lögreglu, skýrari reglna um gjafir og fríðindi, endurbættrar fræðslu um siðferði og heilindi, auk nýrrar löggjafar um innra gæðaeftirlit lögreglu.

Gert er ráð fyrir að sjötta úttekt GRECO á Íslandi fari fram á næsta ári og lýtur hún að vörnum gegn spillingu á sveitarstjórnarstiginu.

Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.