17 desember 2025

/

Ísland undirritar samning um skaðabótanefnd vegna Úkraínu

{image.Description}
COE
Frá ríkjaráðstefnunni í gær.

Ísland var í hópi 35 ríkja sem undirrituðu samning um stofnun alþjóðlegrar skaðabótanefndar vegna Úkraínu í gær. Undirritunin fór fram á ríkjaráðstefnu á vettvangi Evrópuráðsins sem fram fór í Haag með þátttöku Volodómír Selenskí Úkraínuforseta.

„Með þessu undirstrikar Ísland enn á ný nauðsyn þess að standa vörð um alþjóðalög og standa þétt við bakið á Úkraínu. Rússar verða að bera ábyrgð á og bæta það gríðarlega tjón sem þeir hafa valdið úkraínsku þjóðinni. Sá mikli fjöldi ríkja sem undirritaði samninginn í dag er til marks um þann víðtækan stuðning sem Úkraína nýtur,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Í samningnum er kveðið á um að Rússar beri lagalega ábyrgð á innrásinni og beri að greiða skaðabætur fyrir það tjón sem þeir hafa valdið vegna ólögmætrar innrásarstríðs þeirra í Úkraínu. Gerð samningsins má rekja til fundar leiðtoga Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023 þar sem lagður var grunnur að alþjóðlegu ábyrgðarkerfi með það markmið að gera Rússa ábyrga.

Kerfið samanstendur af sérstökum dómstóli, sem dregur til ábyrgðar háttsetta leiðtoga sem framið hafa glæpi gegn friði gagnvart Úkraínu, sérstakri tjónaskrá sem tók til starfa í apríl og nú skaðabótanefnd. Þegar hafa rúmlega áttatíu þúsund kröfur verið skrásettar í tjónaskrána og fær skaðabótanefndin það hlutverk að úrskurða um fjárhæð bóta. 

Skaðabótanefndin verður sjálfstæð eining á vettvangi Evrópuráðsins, en ríki utan þess geta einnig gerst aðilar að nefndinni. Áætlað er að hún verði að fullu starfhæf árið 2029.