18 desember 2025
/
80 verkefni fá úthlutað úr Tónlistarsjóði vegna fyrri úthlutunar árið 2026
Úthlutunarnefndir Tónlistarsjóðs hafa lokið vinnu vegna fyrri úthlutunar 2026. Í sjóðinn bárust alls 342 umsóknir og var heildarupphæð styrkumsókna 538.327.318 kr. Til úthlutunar voru 91.645.000 kr. sem veitt var til samtals 80 verkefna sem skiptast svo á milli fjögurra deilda sjóðsins.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist samkvæmt Tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar.
Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir
184 umsóknir sóttu um alls 242.742.198 kr. Alls er 32.885.000 kr. veitt til 36 verkefna. Hæstu verkefnastyrkina eða 2 m.kr. hvorar fá tónlistarkonurnar Emilíana Torrini og Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir (Lay Low.) Þá hljóta Árni Vilhjálmsson og Dagur Kristinn Sigurðsson Björnsson 1,7 m.kr. í styrk hvor.Árangurshlutfall umsókna er 20% Af úthlutaðri upphæð renna:
23% til verkefna í sígildri- og samtímatónlist40% til popp, rokk og indí
13% til raftónlistar
Rest til annarra tónlistarstefna
Lifandi flutningur - flytjendastyrkir
78 umsóknir sóttu um alls 99.785.974 kr. Alls er 20.010.000 kr. úthlutað til 22 verkefna. Marvaða ehf hlýtur hæsta verkefnastyrkinn eða 1,5 m.kr. fyrir tilraunaóperuna LOVE. Sambandið óperukompaní, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Þórunn Guðmundsdóttir hljóta öll verkefnastyrk upp á 1 m.kr.
Árangurshlutfall umsókna er 28%. Af úthlutaðri upphæð renna:
78% úthlutaðrar upphæðar til verkefna í sígildri og samtímatónlist5% til popp, rokk og indí
Rest til annarra tónlistarstefna
Er það nokkuð í samræmi við hlutfall milli tónlistarstefna sem sóttu um.
Gerðir eru tveir langtímasamningar:
Elja kammersveit hlýtur 3,5 m.kr. á ári í langtímastyrk til tveggja ára fyrir starfsemi sína árin 2026-2027Barokkbandið Brák hlýtur 2,5 m.kr. á ári í langtímastyrk til tveggja ára fyrir starfsemi sína árin 2026-2027
Auk þess eru eftirfarandi verkefni með langtímasamninga í gildi 2026:
Nordic Affect - 2,5 m.kr. (2025 -2026)
Caput - 6 m.kr. (2024-2026)
Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. (2024-2026)
Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir
Alls bárust 65 umsóknir um samtals 172.918.260 kr.
Úthlutað var 32.300.000 kr. til 17 verkefna.
Hæstu verkefnastyrki, 3 m.kr., hlutu Tales from Iceland ehf. fyrir verkefnið Endurreisn Austurbæjarbíós og Sumartónleikar Skálholtskirkju. Þá hlutu Hannesarholt og Reykjavík Early Music Festival 2 m.kr. í styrk hvort.
Heildarárangurshlutfall umsókna er 26%. Af úthlutaðri upphæð renna:
43% til sígildrar og samtímatónlistar20% til djass og blús
15% til verkefna sem vinna þvert á tónlistarstefnur
Rest til annarra tónlistarstefna
Gerðir eru þrír langtímasamningar:
Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði: 3 m.kr. á ári í langtímastyrk til tveggja ára
Jazzhátíð Reykjavíkur: 4 m.kr. á ári í langtímastyrk til þriggja ára
Tónlistarhátíðin Seigla: 2 m.kr. á ári í langtímastyrk til þriggja ára
Auk þess eru eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2026:
Myrkir músíkdagar - 4 m.kr. (2025-2026)
Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
Bræðslan - 1,5 m.kr. (2024-2026)
Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
Viðbótarframlag úr Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar
Þess ber að geta að viðbótarframlagi frá Reykjavíkurborg var ráðstafað til deildar þróunar og innviða úr Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar, sem stofnaður var samkvæmt erfðaskrá þann 14. júlí 1908 og hefur nú verið slitið.
Heildarupphæð framlagsins nam 11 milljónum króna og var ráðstafað af úthlutunarnefnd til fjögurra verkefna. Viðbótarframlagið er ekki sjálfstæður styrkjaflokkur, heldur viðbót sem tengist tilteknum verkefnum og/eða hluta af fjármögnun ákveðinna langtímasamninga.
Verkefni og samningar sem hlutu viðbótarframlag:
Jazzhátíð Reykjavíkur og Seigla: Músíksjóður Guðjóns Sigurðssonar fjármagnar fyrsta samningsárið að fullu, auk barnadagskrár á öðru og þriðja ári - 500.000 kr. á ári hjá Jazzhátíð Reykjavíkur og 350.000 kr. á ári hjá SeigluHannesarholt: 2 m.kr. í verkefnastyrk, þar af 500.000 kr. eyrnamerktar í barnadagskrá
Endurreisn Austurbæjarbíós: 3 m.kr. í verkefnastyrk
Útflutningur - markaðsstyrkir
15 umsóknir sóttu um 22.880.886 kr. Úthlutað er 6.450.000 kr. til 5 verkefna. Hæstu styrkina hljóta Ásgeir, Daði Freyr og Elín Hall upp á 1.7 m.kr. hvert.
Árangurshlutfall umsókna er 33%. Af úthlutaðri upphæð renna:
60% til verkefna í popp, rokk og indí14% til sígildrar og samtímatónlistar
26% til heims- og þjóðlagatónlistar
Skipting veittra styrkja út frá kyni, landshlutum og tegund umsækjanda
Flestar umsóknir bárust frá verkefnum þar sem forsvarsmaður umsóknar var karl, eða 56% og 40% umsókna voru frá konum. Árangurshlutfall umsókna var 21% hjá körlum og 26% hjá konum.
Flestir styrkir Tónlistarsjóðs að þessu sinni eru veittir til einstaklinga eða 51%, 18% fara til fyrirtækja og aðrir styrkir til félagasamtaka, stofnanna og annarra umsækjenda.
Heildar árangurshlutfall umsókna er 23%. Alls 66% af veittri upphæð fara til verkefna á höfuðborgarsvæðinu, 26% til verkefna annars staðar á landinu og 8% til verkefna sem fara fram erlendis.
Lista yfir alla styrkhafa má finna á vef Tónlistarmiðstöðvar.
Úthlutunarnefndir skipuðu eftirfarandi:
Tónlistarstyrkir - Deild frumsköpunar og útgáfu:Sindri Ástmarsson, formaður
Hafdís Bjarnadóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Flytjendastyrkir - Deild lifandi flutnings:
Guðmundur Birgir Halldórsson, formaður
Ása Dýradóttir
Þorbjörg Daphne Hall
Viðskiptastyrkir - Deild innviða og þróunar:
Hildur Kristín Stefánsdóttir, formaður
Freyr Eyjólfsson
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Markaðsstyrkir - Deild útflutnings
Sindri Magnússon, formaður
Elíza Geirsdóttir Newman
Melkorka Ólafsdóttir