18 desember 2025
/
Mál nr. 22/2025 - Álit
ÁLIT
KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA
í máli nr. 22/2025
Dýrahald. Samþykki.
I. Málsmeðferð kærunefndar
Með álitsbeiðni, dags. 10. febrúar 2025, beindi A, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við húsfélagsdeildina B, hér eftir nefnd gagnaðili.
Auk álitsbeiðni voru greinargerð gagnaðila, dags. 5. mars 2025, og athugasemdir álitsbeiðanda, dags. 11. mars 2025, lagðar fyrir nefndina.
Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 18. desember 2025.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Um er að ræða fjöleignarhúsið C og D. Álitsbeiðandi er eigandi eignarhluta í húshluta nr. 98 en gagnaðili er húsfélagsdeildin að D 98.
Kærunefnd telur kröfu álitsbeiðanda vera:
Að viðurkennt verði að ákvörðun gagnaðila frá 22. október 2024 um heimild fyrir dýrahaldi sé ólögmæt.
Álitsbeiðandi byggir á því að ákvörðun um dýrahald í húsinu sé ólögmæt þar sem hún hafi verið tekin án lögmæts samþykkis 2/3 hluta allra eigenda og eignarhluta, sbr. 33. gr. e. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús.
Gagnaðili kveður að boðað hafi verið til húsfundar fyrir húsfélagsdeildina D 98 með fundarboði 10. október 2024. Fundurinn hafi verið haldinn 22. sama mánaðar. Í fundarboði hafi verið tekið skýrt fram að lagt yrði til að eigendur íbúða að D 98 samþykktu almennt dýrahald í húsinu í samræmi við heimild 33. gr. e laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Á fundinn hafi mætt fulltrúar 15 af 23 eignarhlutum eða 65,22% af fjölda með samtals 67,89% eignarhlutfall. Tillagan hafi verið samþykkt með 11 greiddum atkvæðum eða 73,33%, þrjú atkvæði hafi verið mótfallinn tillögunni og eitt atkvæði setið hjá.
III. Forsendur
Samkvæmt þágildandi 1. mgr. 33. gr. e laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús, sem felld var úr gildi með lögum nr. 76/2025 um breytingu á lögunum, var hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi háð samþykki 2/3 hluta eigenda sem hefðu sameiginlegan inngang eða stigagang. Í 2. mgr. sama ákvæðis var kveðið á um að þegar svo háttaði gæti húsfélag eða húsfélagsdeild með samþykki 2/3 hluta eigenda veitt annaðhvort almennt leyfi til hunda- og/eða kattahalds eða einstökum eigendum slíkt leyfi vegna tiltekins dýrs.
Deilt er um ákvarðanatöku sem átti sér stað innan húsfélagsdeildar D 98. Á grundvelli 1. mgr. 76. gr. laga um fjöleignarhús er það svo að þegar húsfélag skiptist í einingar, t.d. stigahús, ráða viðkomandi eigendur einir sameignlegum innri málefnum, sbr. 2. mgr. 7. gr. og 3. mgr. 39. gr. laga um fjöleignarhús, og á þetta ákvæði við um hina umdeildu ákvörðunartöku. Samkvæmt gögnum málsins var mætt fyrir 15 eignarhluta af 23 á húsfund sem haldinn var 22. október 2024. Á fundinum var borin upp tillaga um að eigendur væru samþykkir almennu dýrahaldi í húsinu í samræmi við heimild þágildandi 1. mgr. 33. gr. e laga um fjöleignarhús. Atkvæðagreiðslan fór þannig að 11 atkvæði voru samþykk tillögunni, þrjú atkvæði voru mótfallin og eitt atkvæði var hlutlaust. Samkvæmt framangreindu var fundarsókn fullnægjandi, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um fjöleignarhús, og tillagan var samþykkt með áskildum meiri hluta fundarmanna, sbr. þágildandi 10. tl. B-liðar 1. mgr. 41. gr. laganna.
Með a-lið 2. gr. áðurnefndra laga nr. 76/2025, sem voru birt í Stjórnartíðindum 27. nóvember 2025, var 33. gr. g laga um fjöleignarhús breytt á þá vegu að hunda- og kattahald er ekki háð samþykki eigenda fjöleignarhúss. Verður því ekki talin þörf á að fjalla frekar um þau sjónarmið, sem álitsbeiðandi byggir á, svo sem að eigendur sem hyggist halda hunda eða ketti í íbúðum sínum þurfi hver fyrir sig að leggja fram formlega beiðni áður en leyfi til dýrahaldsins sé veitt.
Með hliðsjón af öllu framangreindu er það niðurstaða kærunefndar að hafna beri kröfu álitsbeiðanda.
Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.
IV. Niðurstaða
Það er álit kærunefndar að hafna beri kröfu álitsbeiðanda.
Reykjavík, 18. desember 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson