21 desember 2025

/

Eyjólfur Ármannsson í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.

Eyjólfur mun gera hlé á feðraorlofi sínu upp úr miðjum janúar til að mæla fyrir nýrri samgönguáætlun.

Breyting á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra hefur verið birt í Stjórnartíðindum.