23 desember 2025
/
Mál nr. 34/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. nóvember 2025
í máli nr. 34/2025:
Ístak hf.
gegn
Reykjavíkurborg og
K16 ehf.
Lykilorð
Bindandi samningur. Kröfu um stöðvun innkaupaferlis hafnað.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu Í þar sem kominn var á bindandi samningur milli R og K, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. júlí 2025 kærði Ístak hf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) um að ganga til samninga við K16 ehf. í kjölfar útboðsferlis nr. 15951 auðkennt „Fossvogsblettur – Leikskóli úr forsmíðuðum timbureiningum“.
Kærandi fer fram á stöðvun samningsgerðar um stundarsakir með vísan til 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun varnaraðila, um að heimila K16 ehf. þátttöku í samkeppnisviðræðum á vegum varnaraðila, verði felld úr gildi með vísan til 37. gr., sbr. 72. gr., sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda vegna ólögmætrar ákvörðunar um að heimila K16 ehf. þátttöku í samkeppnisviðræðum á vegum varnaraðila með vísan til 37. gr., sbr. 72. gr., sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Í báðum tilvikum gerir kærandi kröfu um að varnaraðila verði gert að greiða kostnað kæranda við að hafa uppi kæru þessa honum að skaðlausu samkvæmt mati kærunefndar útboðsmála, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 25. júlí 2025 að stöðvunarkröfu kæranda verði hafnað.
K16 ehf. krefst þess í greinargerð sinni 11. ágúst 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað eða vísað frá kærunefnd.
Þess skal getið að kærunefnd útboðsmála taldi kæru málsins, sem barst 17. júlí 2025, ekki uppfylla þau skilyrði sem gerð eru í 2. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 og beindi því til kæranda að bæta úr þeim annmörkum, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærandi lagði fram kæru sem talin var uppfylla skilyrði 2. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 hinn 24. júlí 2025. Hinn 3. ágúst 2025 var sú kæra send varnaraðila og honum veittur frekari frestur til að tjá sig um kæruna. Með tölvupósti 5. ágúst 2025 upplýsti varnaraðili að hann teldi ekki þörf á þessu stigi málsins að leggja fram frekari athugasemdir, en andmælti því að kæranda væri heimilt að bæta við kröfur sínar og málatilbúnað á síðari stigum.
Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir.
I
Hinn 16. janúar 2024 auglýsti varnaraðili forval vegna fyrirhugaðs útboðs á leikskóla úr forsmíðuðum timbureiningum á vef útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins (TED). Óskað var eftir umsóknum byggingaraðila um þátttökurétt í lokuðum samkeppnisviðræðum á fullnaðarhönnun, útvegun og uppsetningu leikskólabyggingar úr forsmíðuðum timbureiningum sem fyrirhugað væri að reisa við Fossvogsblett, sbr. grein 0.1 í forvalsgögnum.
Í grein 0.2.5 í forvalsgögnum voru gerðar kröfur um hæfi vegna tæknilegrar og faglegrar getu, m.a. að því er varðar umsækjanda og lykilstarfsfólk. Kom þar meðal annars fram að umsækjandi skyldi á síðastliðnum 10 árum hafa útvegað sambærilegt húsnæði fyrir a.m.k. 3 verkefni á Norðurlöndum, en með sambærilegum húsnæði væri átt við a.m.k. 1000 m2 húsnæði úr timbureiningum sem nýtt hefði verið sem kennslu-, skrifstofu-, hjúkrunar- eða hótelrými. Þá skyldi umsækjandi starfa samkvæmt skilgreindu gæðakerfi samkvæmt ISO 9001 staðli, og skyldi umsækjandi skila með umsókn sinni afriti af vottorði gæðakerfis eða handbók gæðakerfis og upplýsingum um þau verk þar sem gæðakerfið hefði verið notað. Að auki skyldi umsækjandi samkvæmt sömu grein hafa yfir að ráða lykilstarfsfólki með reynslu af því að útvega og setja upp sambærilegt húsnæði og það sem bjóðandi hygðist bjóða verkkaupa í hinu kærða útboði, ásamt því að búa yfir fjölbreyttri reynslu á sínu sviði. Umræddir lykilstarfsmenn og kröfur til þeirra voru taldir upp í greininni.
Hinn 30. apríl 2024 tilkynnti varnaraðili um val á þátttakendum í forvali og mun tilkynningin hafa verið send á bæði kæranda og K16 ehf. Hinn 13. september 2024 mun bæði kæranda og K16 ehf. hafa verið boðið að taka þátt í seinna þrepi hins kærða útboðs, þ.e. samkeppnisviðræðum. Endanleg tilboð voru opnuð 30. apríl 2025. Samkvæmt gögnum málsins var bjóðendum tilkynnt 22. maí 2025 um að varnaraðili hefði ákveðið að ganga til samninga við K16 ehf. og í tilkynningunni var bjóðendum leiðbeint um kæruleið og biðtíma. Hinn 3. júní 2025 mun bjóðendum jafnframt hafa verið tilkynnt um endanlegt samþykki tilboðs K16 ehf. í hinu kærða útboði.
Kærandi heldur því fram að hann hafi ekki fengið tilkynningu varnaraðila um endanlegt samþykki tilboðs K16 ehf. og því líti kærandi svo á að ekki hafi stofnast til endanlegs samþykkis tilboðs félagsins. Þá byggir kærandi á því að K16 ehf. hafi ekki uppfyllt kröfur forvalsgagna um tæknilega og faglega getu, n.t.t. um sambærileg verk, og jafnframt um að félagið búi ekki yfir vottuðu gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Kærandi byggir einnig á því að tilboð K16 ehf. uppfylli ekki kröfur forvalsgagna um reynslu tiltekinna lykilstarfsmanna.
Varnaraðili hafnar fullyrðingu kæranda þess efnis að hann hafi ekki fengið tilkynningu um endanlegt samþykki tilboðs, sem hafi verið send 3. júní 2025. Þá bendir varnaraðili á að kominn sé á bindandi samningur í skilningi laga nr. 120/2016 sem ekki verði felldur úr gildi eða honum breytt eftir að hann sé kominn á, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Því beri að hafna stöðvunarkröfu kæranda. Að því er varðar önnur sjónarmið kæranda um að K16 ehf. hafi ekki uppfyllt kröfur forvalsgagna, þá andmæli varnaraðili þeim sem röngum og áskilji sér rétt til þess að fjalla nánar um þann málatilbúnað kæranda reynist það nauðsynlegt eða tilefni gefist til.
K16 ehf. bendir á að bindandi samningur hafi verið gerður 3. júní 2025, sbr. tilkynningu varnaraðila til bjóðenda þann sama dag. Þá verði bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. K16 ehf. bendir að auki á að kæran lúti að hæfi félagsins sem hafi verið valið ásamt kæranda í forvali 30. apríl 2024. Sé kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga nr. 120/2016 því löngu liðinn. Að auki andmælir K16 ehf. sjónarmiðum kæranda þess efnis að félagið hafi ekki uppfyllt kröfur forvalsgagna.
Niðurstaða
Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Samkvæmt gögnum málsins samþykkti varnaraðili 3. júní 2025 tilboð K16 ehf. Hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 og verður þegar af þeirri ástæðu að hafna kröfu kæranda um að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð
Hafnað er kröfu kæranda, Ístaks hf., um stöðvun á samningsgerð milli varnaraðila, Reykjavíkurborgar, og K16 ehf. vegna útboðs nr. 15951 auðkennt „Fossvogsblettur – Leikskóli úr forsmíðuðum timbureiningum“.
Reykjavík, 17. nóvember 2025
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir