06 janúar 2026

/

Morgunverðarfundur um aðgerðir til að efla neytendavernd í tengslum við gjaldskyldu á bílastæðum

{image.Description}
Sigurjón Ragnar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heldur morgunverðarfund fimmtudaginn 8. janúar, kl. 9.00 í Vox salnum á Hilton Reykjavik Nordica.

Á fundinum verður fjallað um aðgerðir til að efla neytendavernd í tengslum við gjaldskyldu á bílastæðum.

Auk ráðherra munu þau Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu og Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB flytja erindi.

Dagskrá fundar:

  • 8.30 - Hús opnar - morgunverður
  • 9.00 - Opnunarávarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra
  • 9.15 - Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu – Aðgerðir Neytendastofu og leiðbeiningar fyrir gjaldskyld bílastæði
  • 9.30 - Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB – Bílastæðagræðgin
  • 9.45 - Samantekt Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra
  • 9.50 – Fundarlok

Fundurinn er öllum opinn.