07 janúar 2026
/
Fréttaannáll innviðaráðuneytisins 2025
Nýliðið ár var viðburðaríkt á öllum málefnasviðum innviðaráðuneytisins. Í fréttaannál fyrir árið 2025 er fjallað um helstu áfanga með hlekk á tilheyrandi frétt á vef Stjórnarráðsins.
Á árinu voru samþykkt á Alþing ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga i og einnig þingsályktunartillaga um borgarstefnu. Einnig var nýtt frumvarp um breytingar á sveitarstjórnarlögum kynnt. Á sviði byggðamála var úthlutað úr þremur samkeppnissjóðum á grundvelli byggðaáætlunar og gefnar voru út leiðbeiningar um opinbera grunnþjónustu.
Átaksverkefni til að tryggja að á annan tug þéttbýlisstaða og byggðakjarna vfái tvöfalda ljósleiðaratengingu var kynnt í desember og fyrr á árinu var fjármögnun á varafjarskiptaleið um gervihnött tryggð. Þá veitti Eyvör - hæfnisetur í netöryggi (NCC-IS) netöryggisstyrki til fimmtán verkefna.
Ný samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 og stofnun innviðafélags um stærri samgönguframkvæmdir.var kynnt í desember, m.a. um að framlög í viðhald vega verði hækkuð um helming á hverju ári og að kyrrstaða við jarðgangagerð verði rofin. Fyrr á árinu voru framlög til viðhalds vega árið 2025 verið stóraukin í fjáraukalögum. Nýr tvöfaldur vegarkafli var opnaður í desember á Reykjanesbraut sem er nú tvöföld alla leið milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu voru efldar með fjölgun ferða og lengri aksturtíma með framlögum úr Samgöngusáttmálanum.
Innviðaráðherra hélt opna íbúafundi í ágúst um land allt til að eiga samráð um alla málaflokka ráðuneytisins. Loks hélt ráðuneytið Innviðaþing í lok ágúst undir yfirskriftinni Sterkir innviðir – sterkt samfélag en þar var sjónum beint að uppbyggingu og öryggi innviða og leiðum til að fjármagna innviðauppbyggingu á sviði samgangna og fjarskipta.