07 janúar 2026
/
Ísland tekur undir þrjár yfirlýsingar um Palestínu
Ísland hefur á síðastliðnum tveimur vikum tekið undir þrjár sameiginlegar yfirlýsingar vegna stöðu mála í Palestínu.
Í yfirlýsingu sextán ríkja þann 25. desember er ákvörðun ísraelska stjórnvalda um fyrirhugaðar 19 nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum fordæmd. Áréttað er að aðgerðirnar brjóti ekki aðeins í bága við alþjóðalög heldur auki einnig hættuna á óstöðugleika og grafi undan möguleikanum á langvarandi friði og öryggi á svæðinu.
Tæpri viku seinna, eða þann 30. desember tók Ísland undir yfirlýsingu ellefu ríkja þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum af alvarlegu mannúðarástandi á Gaza og kallað eftir því að félagasamtök og stofnanir Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal UNRWA, geti haldið áfram að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð.
Að síðustu, þann 5. janúar, var ný löggjöf Ísraels sem beint er gegn Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fordæmd í sameiginlegri yfirlýsingu átta ríkja, þar á meðal aðgerðir til að loka fyrir vatn, rafmagn og fjarskipti til starfsstöðva stofnunarinnar. Jafnframt er skorað á Ísrael að tryggja að alþjóðleg félagasamtök fái áfram starfað á Gaza, og eins að brýnt sé að virða friðhelgi Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegan mannúðarrétt.
Yfirlýsingarnar má lesa hér í heild sinni:
Joint Statement on settlements in the Occupied West Bank
Joint Statement on the Gaza Humanitarian Response
Joint statement on support to UNRWA and NGOs