07 janúar 2026
/
Morgunfundur um alþjóðlegt samhengi atvinnustefnu
Forsætisráðuneytið býður til morgunfundar um fyrirhugaða atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar í Grósku þriðjudaginn 13. janúar nk. Forsætisráðherra ræðir um stefnumótunina og Mariana Mazzucato heldur lykilerindi um alþjóðlegt samhengi atvinnu- og efnahagstefna. Mazzucato er prófessor við University College London (UCL) þar sem hún er stofnandi og forstöðumaður UCL Institute for Innovation and Public Purpose.
Fundurinn, sem er öllum opinn, hefst kl. 8:30 en boðið verður upp á kaffi og veitingar eftir fundinn sem lýkur kl. 9:45.
Fundurinn fer fram á ensku og verður í beinu streymi á visir.is og mbl.is.
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn