07 janúar 2026

/

Skráningarskylda og hækkaðar fjárhæðir vegna minniháttaraðstoðar

{image.Description}
Hari
Nýjar reglur um minniháttaraðstoð (De minimis aid) á sviði ríkisaðstoðar hafa verið innleiddar hér á landi.

Minniháttaraðstoð felur í sér að unnt er að veita fyrirtækjum, að uppfylltum skilyrðum, ríkisstyrki án þess að fara í gegnum formlegt tilkynningarferli til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Fram til þessa hefur aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Evrópusambandsins (ESB) ekki verið skylt að skrá veitta minniháttaraðstoð.
Helstu breytingar sem innleiðing reglugerðanna felur í sér eru:

Hækkun fjárhæða minniháttaraðstoðar:

  • Almenn minniháttaraðstoð hækkar úr 200.000 evrum í 300.000 evrur á þriggja ára tímabili.

  • Minniháttaraðstoð vegna þjónustu sem hefur almenna efnahagslega þýðingu hækkar úr 500.000 evrum í 750.000 evrur.

Skráningarskylda frá 1. janúar 2026:

  • Öll minniháttaraðstoð sem veitt er á Íslandi, hvort sem hún fellur undir almennar reglurnar eða reglur um þjónustu með almenna efnahagslega þýðingu, skal skráð í miðlæga skrá framkvæmdastjórnar ESB.

Uppsöfnun heimil:

  • Heimilt verður að veita styrki samkvæmt báðum reglunum samtímis, að hámarki 1.050.000 evrur á þriggja ára tímabili (300.000 evrur + 750.000 evrur).

  • Styrkveitendur skulu sjá um skráningu. Atvinnuvegaráðuneytið mun halda utan um skráningar og veita upplýsingar eftir þörfum.

Hér má finna reglugerð framkvæmdastjórnar ESB gagnvart minniháttaraðstoð auk reglugerðar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart minniháttaraðstoð sem veitt er fyrirtækjum sem veita þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu.