14 janúar 2026

/

Úrskurður félags- og húsnæðismálaráðuneytis 1/2026

Miðvikudaginn 14. janúar 2026 var í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 7. júlí 2025, sbr. einnig erindi til ráðuneytisins, dags. 6. ágúst 2025, kærði Þorgeir Helgason, lögfræðingur, fyrir hönd Nings ehf., kt. 680406-3160, og A, sem er ríkisborgari Filippseyja, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. júní 2025, um afturköllun tímabundins atvinnuleyfis til handa A vegna starfa hans hjá Nings ehf. auk þess sem óskað var eftir að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað. Úrskurður þessi lýtur eingöngu að beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

 

Málsatvik og málsástæður

Málavextir verða hér einungis raktir að því marki sem þörf er á í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

 

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. júní 2025, um afturköllun tímabundins atvinnuleyfis til handa A vegna starfa hans hjá Nings ehf.

 

Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi, dags. 7. júlí 2025, sbr. einnig erindi til ráðuneytisins, dags. 6. ágúst 2025, auk þess sem kærendur óskuðu eftir því að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Í erindi kærenda eru færð fram þau rök fyrir frestun réttaráhrifa á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að aðstæður viðkomandi útlendings séu slíkar að ástæða sé til að fresta réttaráhrifum, enda hafi hann starfað hér á landi um nokkurt skeið.

 

Fram kemur að verði réttaráhrifum ekki frestað myndi það að mati kærenda hafa víðtæk áhrif á viðkomandi útlending, enda yrði honum þá óheimilt að afla sér tekna hér á landi auk þess sem ákvörðunin myndi takmarka möguleika hans til að fá veitt ótímabundið dvalarleyfi hérlendis. Enn fremur kemur fram að viðkomandi útlendingur sé mikilvægur starfsmaður hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda og því sé nauðsynlegt að mati kærenda að honum sé heimilt að starfa hér á landi á meðan kæran sé til meðferðar. Þá benda kærendur á að ástæða sé til að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þar sem um sé að ræða breytta réttarstöðu fyrir aðila máls og vísa kærendur í því sambandi til úrskurðar félagsmálaráðuneytisins nr. 1/2020 máli sínu til stuðnings.

 

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 18. ágúst 2025 og var stofnuninni veittur frestur til 3. september 2025 til að veita umbeðna umsögn. Í bréfinu óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir umsögn Vinnumálastofnunar í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar auk þess sem ráðuneytið óskaði eftir afriti af öllum gögnum málsins. Þann 19. september 2025 ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2025, um umsögn stofnunarinnar.

 

Í umsögn Vinnumálastofnunar, dags. 3. nóvember 2025, kemur meðal annars fram að viðkomandi útlendingi hafi áður verið veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga til að gegna starfi hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda og hafi leyfið verið veitt með vísan til framlagðra gagna um menntun og starfsreynslu viðkomandi. Enn fremur kemur fram að leyfið hafi verið veitt þar sem sýnt hafi verið fram á skort á starfsfólki hér á landi með sambærilega menntun og reynslu í nóvember 2022 þegar leyfið hafi verið veitt í fyrsta sinn.

 

Atvinnuleyfi viðkomandi útlendings hafi síðan verið framlengt og hafi honum verið veitt atvinnuleyfi frá 18. desember 2023 til 21. nóvember 2024 og frá 20. desember 2024 til 21. nóvember 2025. Atvinnuleyfi viðkomandi útlendings hafi síðan verið afturkallað með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. júní 2025, með vísan til 1. mgr. 24. gr. og b-liðar 1. mgr. 27. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem viðkomandi útlendingur hafi að mati stofnunarinnar lagt fram röng eða villandi gögn með fyrri umsóknum um atvinnuleyfi.

 

Þá kemur fram að Vinnumálastofnun telji að þegar óskað sé eftir framlengingu atvinnuleyfis á grundvelli skorts á starfsfólki beri Vinnumálastofnun að leggja mat á hvort skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis teljist uppfyllt. Umsækjendur um tímabundin atvinnuleyfi geti því ekki haft réttmætar væntingar um framlengingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli skorts á starfsfólki. Það sé mat stofnunarinnar að í máli þessu séu ekki fyrir hendi ástæður sem mæli með að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

 

Með bréfi ráðuneytisins, dags. 3. nóvember 2025, var kærendum gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum við umsögn Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 18. nóvember 2025. Erindið var ítrekað þann 24. nóvember 2025.

 

Í svarbréfi kærenda, dags 12. desember 2025, ítrekuðu kærendur áður fram komin sjónarmið sín í málinu. Auk þess bentu kærendur meðal annars á að meginreglan um réttmætar væntingar lúti að því að handhafi tímabundins atvinnuleyfis sem er í gildi geti treyst því að það verði ekki afturkallað á gildistíma leyfisins nema að lagaskilyrði fyrir afturköllun séu ótvírætt uppfyllt og að gætt sé meðalhófs.

 

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til félags- og húsnæðismálaráðuneytis ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna. Samkvæmt 2. mgr. 34. gr. laganna frestar stjórnsýslukæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum við 15. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 74/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, er varð að 34. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga, er tekið fram að miðað sé við að ráðuneytinu „sé engu síður heimilt á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þar sem ástæður mæla með því.“

 

Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar um afturköllun tímabundins atvinnuleyfis með vísan til 1. mgr. 24. gr. og b-liðar 1. mgr. 27. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem viðkomandi útlendingur hafi að mati stofnunarinnar lagt fram röng eða villandi gögn með fyrri umsóknum um atvinnuleyfi.

 

Í gögnum málsins kemur fram að viðkomandi útlendingi hafi áður verið veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga til að gegna starfi hjá sama atvinnurekanda og hér um ræðir en við veitingu þess leyfis hafi legið fyrir tiltekin gögn um menntun og staðfesting á starfsreynslu viðkomandi útlendings. Síðar hafi komið í ljós að fyrrnefnd gögn hafi verið röng eða villandi að mati Vinnumálastofnunar og hafi stofnunin því afturkallað atvinnuleyfi viðkomandi útlendings á grundvelli 1. mgr. 24. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem að hann hafi veitt stofnuninni rangar upplýsingar sem hefðu geta haft veruleg áhrif við leyfisveitinguna.

 

Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er æðra stjórnvaldi heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því. Í athugasemdum við 2. mgr. 29. gr. frumvarps þess er síðar varð að stjórnsýslulögum kemur meðal annars fram að ávallt verði að vega og meta í hverju tilviki fyrir sig hvort réttlætanlegt sé að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en við slíkt mat beri að líta til réttmætra hagsmuna hjá öllum aðilum máls. Þá kemur fram að reglan þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti í raun orðið þýðingarlaus ef æðra stjórnvald hefur ekki heimild til þess að fresta réttaráhrifum ákvörðunar. Jafnframt kemur fram að ákvæðið hafi mesta þýðingu varðandi ákvarðanir sem fela í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila, svo sem boð eða bann. Það hafi hins vegar sjaldnast nokkra þýðingu þegar um sé að ræða neikvæðar stjórnvaldsákvarðanir þar sem synjanir hafi í för með sér óbreytt ástand fyrir aðila. Enn fremur kemur fram að það mæli með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls er einungis einn og sú ákvörðun sem um ræðir er íþyngjandi fyrir hann. Í athugasemdunum kemur einnig fram að líta beri til þess hversu langt sé um liðið frá því að hin kærða ákvörðun var tilkynnt aðilum en einnig verði að horfa til þess hversu líklegt það sé að ákvörðuninni verði breytt.

 

Að framangreindu virtu lítur ráðuneytið almennt svo á að við mat á því hvort fresta beri réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar beri ávallt að leggja heildstætt mat á aðstæður. Í máli þessu liggur fyrir að tímabundið atvinnuleyfi sem áður hafi verið veitt viðkomandi útlendingi hafi verið framlengt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, með gildistíma frá 20. desember 2024 til 21. nóvember 2025. Þá liggur fyrir í gögnum málsins að umrætt atvinnuleyfi hafi verið afturkallað með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. júní 2025.

 

Þar sem gildistími þess tímabundna atvinnuleyfis, sem afturkallað var með hinni kærðu ákvörðun rann út 21. nóvember 2025, er liðinn er það mat ráðuneytisins að kærendur hafi ekki réttmæta hagsmuni af því að réttaráhrifum verði frestað í máli þessu. Eins og atvikum þessa máls er háttað verður því að mati ráðuneytisins að líta svo á að ekki séu fyrir hendi ástæður sem mæli með frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

 

Í ljósi framangreinds telur ráðuneytið að ástæður í máli þessu mæli ekki með því að réttaráhrifum umræddrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar verði frestað þar til niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir í málinu og því verði ákvæði 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga ekki beitt í máli þessu.

 

 

 

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 25. júní 2025, um afturköllun tímabundins atvinnuleyfis til handa A sem er ríkisborgari Filippseyja, vegna starfs hjá Nings ehf., á meðan stjórnsýslukæra er til meðferðar hjá ráðuneytinu, er hafnað.

 

 

Fyrir hönd ráðherra,

 

Bjarnheiður Gautadóttir

Stefán Daníel Jónsson