15 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 16/2026
Hinn
úrskurður nr. 16/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25090112
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. september 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 11. september 2025, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í viðbótarathugasemdum sem fylgdu ákvörðuninni kemur fram að kærandi hefði ekki leitt líkur að tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar auk þess sem framburður hans væri ótrúverðugur.
Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 24. september 2025, hafi kærandi verið stöðvaður af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Aðspurður af tollvörðum kvaðst kærandi ekki þekkja neinn á Íslandi en skömmu síðar hafi hann fengið símtal úr íslensku símanúmeri með tilteknum tengiliðaupplýsingum. Í aðstöðu lögreglu var kæranda kynntur réttur sinn til að leita sér m.a. aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst ætla að dvelja á Íslandi í fjóra daga og kvaðst vera með farmiða úr landi að nýju. Aðspurður hafi kærandi viljað skoða “The Black Sea“ og eldfjallasvæði. Hann hefði undir höndum bókaða miða í skipulagðar ferðir. Þegar kærandi var beðinn um að framvísa bókunum sínum og gera grein fyrir ferðunum kvað hann vin sinn hafa keypt miðana og kvaðst ekki vita hvað hann væri að fara að sjá. Kærandi gaf lögreglu nafn vinar síns en hafði ekki upplýsingar um tengsl og dvalarstað en kvaðst vera með tengiliðaupplýsingar á samskiptaforritinu WhatsApp. Að sögn kæranda hefði umræddur vinur boðið sér til Íslands og greitt fyrir flugmiða hans. Kærandi hafi sýnt lögreglu samskipti við umræddan vin á samskiptaforritinu. Samskiptin hafi innihaldið leiðbeiningar um hvernig kærandi ætti að bera sig að á ytri landamærum Schengen-svæðisins í Þýskalandi til þess að draga að sér minni athygli. Þá hafi vinurinn leiðbeint kæranda um að gefa ekki upp nöfn ef hann yrði spurður við hvern hann ætti í samskiptum. Þá hafi kærandi sent skilaboð þess efnis að hann hefði gleymt stöðunum sem hann ætti að nefna við komu til landsins. Vinur kæranda hafi þá tilgreint nokkra ferðamannastaði en kærandi ekki nefnt neinn þeirra þegar lögregla hafði spurst fyrir um ferðaáætlanir hans.
Lögregla hafi hringt í vin kæranda í gegnum samskiptaforritið og óskað eftir kennitölu og farsímanúmeri svo unnt væri að ræða betur við viðkomandi. Hafi vinurinn lýst kæranda sem frænda sínum og kveðið hann vera í lagi. Í framhaldinu hafi vinurinn skellt á og sent kæranda ítrekuð skilaboð og kallað hann niðrandi viðurnefnum. Jafnframt hafi vinurinn ítrekað við kæranda að nefna engin nöfn. Kærandi kvaðst ekki vera með útskýringu á hegðun vinar síns. Við frekari yfirferð lögreglu á samskiptum kæranda og vinar hans hafi komið í ljós upplýsingar um tiltekinn íslenskan lögmann. Aðspurður um lögmannsaðstoð kvaðst kærandi ekki hafa þörf fyrir lögmann. Hafi lögregla þó ítrekað rétt kæranda í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga. Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 12. september 2025. Hinn 17. september 2025 var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 17. september 2025 ásamt fylgigögnum. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 20. október 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi komið til landsins með flugi frá Frankfurt, Þýskalandi. Lögregla hafi haft afskipti af honum og spurt út í tilgang ferðar hans. Kærandi hafi framvísað farmiða úr landi að nýju, hótelbókun og bókunum í Bláa Lónið og Sky Lagoon. Að sögn kæranda hafi lögregla tekið farsíma hans og afhent honum hann degi síðar samhliða birtingu ákvörðunar um frávísun. Óljóst sé á hvaða valdheimildum haldlagning farsímans byggi.
Kærandi byggir á því að ákvörðunin hafi hvorki innihaldið efnislegan rökstuðning né hafi kæranda verið leiðbeint um rétt sinn til að óska eftir rökstuðningi. Við birtingu ákvörðunar hafi kæranda fyrst verið kynntur réttur sinn til að leita aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Þá hafi honum verið gert að sæta tilkynningarskyldu á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga og 15. gr. laga um landamæri. Hafi kærandi í kjölfarið keypt flugmiða en verið neitað að fara um borð í vélina með þeim rökum að lögregla hafi keypt fyrir hann farmiða og hafi hann síðan undirritað skuldaviðurkenningu.
Kærandi byggir á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni hér á landi þar sem hann hafi framvísað gögnum í samræmi við 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar og brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Brot gegn framangreindum reglum séu verulegir efnislegir annmarkar og sé ákvörðunin því ógildanleg. Að auki er byggt á því að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýsluréttar um markhæfni, þar sem ákvörðunin falli ekki að markmiðum 106. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að markmiðið sé að koma í veg fyrir að einstaklingar komi til landsins á fölskum forsendum með það fyrir augum að dvelja og vinna án leyfis. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi komið í öðrum tilgangi en sem ferðamaður.
Þegar litið sé til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og að ekkert bendi til þess að hann hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verði ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Kærandi byggir á því að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að tilgangur dvalar sé annar en framburðurinn hafi borið með sér. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun sé íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun. Séu skilyrði fyrir frávísun því ekki uppfyllt. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 604/2025, dags. 21. ágúst 2025, til stuðnings kröfu sinni.
Kærandi byggir einnig á verulegum málsmeðferðarannmörkum, efnislegum annmörkum og skorti á rökstuðningi. Hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, með því að leiðbeina kæranda ekki um hvaða gögnum hún hafi óskað eftir og veita honum ekki leiðbeiningar um þær réttarheimildir sem reynt hafi á við úrlausn málsins. Með framangreindu hafi lögregla að auki brotið gegn andmælarétti hans, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga.
Kærandi vísar til þess að lögregla hafi brotið gegn skýlausum rétti hans samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga þar sem kæranda hafi ekki verið leiðbeint um rétt sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað í upphafi málsins. Kærandi vísar til tiltekinna úrskurða máli sínu til stuðnings. Hann telur að framangreindir annmarkar hafi leitt til þess að mál hans hafi ekki verið rannsakað í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Í hinni kærðu ákvörðun sé jafnframt ekki að finna rökstuðning og ekki sé tilgreint hvaða gögn hafi skort eða hafi leitt til niðurstöðu lögreglu í málinu. Hafi ákvörðunin heldur ekki innihaldið leiðbeiningar um rétt til rökstuðnings í samræmi við 1. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Ákvörðunin hafi því ekki verið nægilega skýr til að kærandi geti metið réttarstöðu sína.
Kærandi byggir einnig á því að málsmeðferðin hafi ekki verið í samræmi við góða og vandaða stjórnsýsluhætti. Hann hafi orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis sem brjóti gegn 65. gr. stjórnarskrárinnar, 11. gr. stjórnsýslulaga og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Vísar kærandi til þess að embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum leiti markvisst uppi albanska komufarþega með það að markmiði að vísa þeim frá landinu. Samkvæmt framangreindu telji kærandi að ákvörðunin sé haldin verulegum annmörkum. Hafi lögreglu því ekki verið heimilt að gera honum að sæta tilkynningarskyldu á flugvellinum.
Meðal fylgigagna sem kærandi lagði fram á kærustigi eru bókun fyrir gistingu og miða í Sky Lagoon ásamt reikningi ferðaskrifstofu fyrir ferð til Íslands.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 11. september 2025, byggir á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi sem ferðamaður í fjóra daga frá 11. til 14. september 2025. Kærandi bar fyrir sig að hafa farmiða úr landi og kvaðst vera með bókaða miða fyrir skipulagðar ferðir á Íslandi. Kvaðst kærandi vilja sjá “The Black Sea“ og eldfjallasvæði. Á kærustigi lagði kærandi m.a. fram bókun í Sky Lagoon en eina tilvísunin til staðarins við afskipti lögreglu hafi verið fyrirmæli vinar kæranda, í skilaboðum í farsíma kæranda, um að nefna staðinn ef hann yrði stöðvaður á landamærunum. Hafi ferðaáætlun kæranda verið óljós og t.a.m. vísað til staða sem ekki má finna á Íslandi. Í lögregluskýrslu kemur fram að kærandi hafi greint frá því, eftir að hann hafi verið stöðvaður af tollvörðum, að hann þekkti engan á Íslandi. Skömmu síðar hafi verið hringt í kæranda úr íslensku símanúmeri. Framburður kæranda hafi síðar breyst og hjá lögreglu greindi hann frá því að umræddur aðili væri vinur hans sem hafi boðið honum til Íslands og komið að skipulagningu ferðarinnar. Hafi kærandi m.a. sýnt lögreglu samskipti við umræddan vin á samskiptaforritinu WhatsApp. Í kjölfarið hafi lögregla hringt í vin kæranda og óskað eftir frekari tengiliða- og auðkennaupplýsingum svo lögreglu væri unnt að ræða betur við hann. Hafi hann lýst kæranda sem frænda sínum og í kjölfarið skellt á lögreglu. Í framhaldinu hafi hann sent kæranda ítrekuð skilaboð og kallað hann niðrandi viðurnefnum. Hafi hann jafnframt áréttað við kæranda að nefna engin nöfn. Að framangreindu virtu hafa skýringar kæranda á ferðaáætlun ekki staðist og er framburður hans óáreiðanlegur. Hefur kærandi því ekki fært rök fyrir tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni, sbr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Kærandi vísar til þess að málsmeðferð og ákvörðun lögreglunnar hafi brotið gegn 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga, og 11. gr. laga um útlendinga. Að virtum atvikum málsins er ekki ástæða til þess að gera athugasemd við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglu í máli kæranda. Er sérstök athygli vakin á því að kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við upphaf málsins, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Eiga úrskurðir sem kærandi vísar til því ekki við í málinu.
Samantekt
Að framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfest.
Skylda kæranda til að dveljast á tilteknum stað
Í greinargerð kæranda er gerð krafa þess efnis að felld verði úr gildi ákvörðun lögreglu um að gera kæranda að halda sig á ákveðnum stað á grundvelli 15. gr. laga um landamæri nr. 136/2022, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Endurskoðun á ákvörðunum lögreglu sem teknar eru á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga er á höndum dómstóla en ekki kærunefndar útlendingamála. Verður þeim hluta málsins því vísað frá kærunefnd.
Athugasemdir kæranda við meðferð lögreglu
Kærandi kveðst hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis við meðferð málsins. Að virtum gögnum málsins hefur kærandi ekki fært rök fyrir því að meðferð málsins hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög, lög um útlendinga og aðrar óskráðar málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttarins eða stjórnarskrá. Kæranda er bent á að hann geti borið umkvartanir um vinnubrögð lögreglu undir nefnd um eftirlit með lögreglu eða héraðssaksóknara, sbr. VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, telji hann ástæðu til.
Athugasemdir við störf lögreglu
Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum tók lögregla hina kærðu ákvörðun 11. september 2025 en hún var kærð til kærunefndar 12. september 2025. Kærunefnd óskaði eftir afhendingu gagna málsins af hálfu Lögreglustjórans á Suðurnesjum með tölvubréfi, dags. 15. september 2025, og lét lögregla nefndinni gögn málsins í té 20. október 2025. Gagnasending lögreglu innihélt skjal, sem nefnt var samantekt, en skjalið er dagsett 24. september 2025 og skýrslugerðin undirrituð 2. október 2025.
Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 40/2012 ber stjórnvöldum, við meðferð stjórnsýslumála, að skrá upplýsingar um málsatvik sem veittar eru munnlega eða viðkomandi fær vitneskju um með öðrum hætti ef þær hafa þýðingu fyrir úrlausn máls og er ekki að finna í öðrum gögnum þess. Sama á við um helstu ákvarðanir um meðferð máls og helstu forsendur ákvarðana, enda komi þær ekki fram í öðrum gögnum málsins. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga kemur fram að skráning upplýsinga í samræmi við umrætt lagaákvæði skuli gera eins fljótt og unnt er svo skráning upplýsinganna verði bæði nákvæm og rétt. Þá er haft í huga að oft er ekki fyrirséð á þeim tíma sem upplýsingar koma fram hvort þær hafi þýðingu fyrir málið sem ætti að leiða til þess að meira sé skráð en minna, þó ekki svo langt að það standi nauðsynlegri skilvirkni stjórnsýslunnar fyrir þrifum.
Framangreind skráningarskylda á við án tillits til þess hvort mál hefur sætt kæru til æðra stjórnvalds. Þrátt fyrir þetta verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að farist hafi fyrir að skrá formlega niður þau atvik sem lágu til grundvallar hinni kærðu ákvörðun og að það hafi ekki verið gert fyrr en rúmri viku eftir að ákvörðunin var tekin. Verður því ekki annað séð en að við meðferð lögreglu í máli kæranda hafi skráningarskylda 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga verið vanrækt, enda upplýsingarnar ekki skráðar eins fljótt og unnt var. Er því beint til lögreglu að gæta að framangreindu við meðferð mála um frávísun. Eins og atvikum málsins háttar er annmarkinn þó ekki slíkur að valdi ógildingu ákvörðunarinnar og hefur ekki áhrif á niðurstöðu málsins.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.