16 janúar 2026

/

Mál nr. 63/2025 - Álit

ÁLIT

KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA

í máli nr. 63/2025

 

Aftenging raflagna. Sameiginlegur rafmagnsmælir.

I. Málsmeðferð kærunefndar

Með álitsbeiðni, dags. 6. maí 2025, beindi A, hér eftir nefnd álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við B, hér eftir nefndur gagnaðili.

Gagnaðili hefur ekki látið málið til sín taka þrátt fyrir beiðni kærunefndar þar um.

Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 16. janúar 2026.

II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Um er að ræða fjöleignarhúsið C, alls fjóra matshluta. Stigagangarnir þrír eru hver fyrir sig einn matshluti og fjórði matshlutinn er bílskúrslengja með samtals tólf bílskúrum. Aðilar eiga hvor um sig einn bílskúr.

Kröfur álitsbeiðanda eru:

Að viðurkennt verði að gagnaðila beri að setja rafmagn aftur á fjóra bílskúra sem séu með sameiginlegan mæli og að honum beri að greiða kostnað við það.

Sjónarmið álitsbeiðanda

Álitsbeiðandi kveðst hafa keypt íbúð sína í október 2024 meðvituð um að ekkert rafmagn væri á bílskúrnum sem tilheyri íbúðinni. Í janúar hafi hún komist að því að í bílskúr gagnaðila sé rafmagnsmælir sem eigi að vera fyrir fjóra bílskúra, þar á meðal hennar og tveggja annarra eigenda sem séu samþykkir álitsbeiðninni, en í þeirra bílskúrum séu frádráttarmælar. Þetta komi fram í eignaskiptayfirlýsingu hússins. Ekkert rafmagn sé á bílskúrunum vegna þess að gagnaðili hafi ekki viljað hafa þetta fyrirkomulag og hafi hann því aftengt raflagnir sem legið hafi í hina skúrana án samráðs við aðra eigendur, sem hafi vaknað einn morguninn með ekkert rafmagn í bílskúrunum. Fyrri eigandi íbúðar álitsbeiðanda hafi sent gagnaðila tölvupóst til að athuga hvað væri að valda rafmagnsleysinu og hafi hann þá viðurkennt það sem hann hafði gert. Álitsbeiðandi hafi reynt að ræða við gagnaðila en hann telji sig ekki þurfa að laga neitt og þverneitað að bæta úr þessu. Boðað hafi verið til húsfundar vegna þessa máls en það hafi engu skilað. Þar sem gagnaðili hafi lokað á rafmagn fyrir skúrana þrjá séu þeir ónothæfir enda engir gluggar á þeim og þannig engin birta. Það þurfi að laga þak á bílskúr álitsbeiðanda vegna leka og einnig sprungur á múrnum innandyra en til þess þurfi verkfæri sem þurfi rafmagn. Ekki sé hægt að framkvæma verkið vegna rafmagnsleysis og liggi bílskúrinn undir skemmdum.

III. Forsendur

Í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús er kveðið á um að einstökum eiganda sé ekki heimilt upp á sitt einsdæmi að taka ákvarðanir eða gera ráðstafanir sem snerta sameign eða sameiginleg málefni nema svo sé ástatt sem greinir í 33. gr. b., 37. og 38. gr.

Í eignaskiptayfirlýsingu hússins, innfærðri til þinglýsingar 10. október 2001, segir um rafmagnsnotkun í bílskúrum aðila og tveggja annarra eigenda:

Rafmagnsnotkun í bílskúrum er mæld þannig að […] fyrir eignir 01-01 til 01-04 er sameiginlegur mælir en með frádráttarmælum þannig að greina megi notkun hverrar eignar fyrir sig. Sameiginlegi mælirinn er staðsettur í bílskúr 01-03 en frádráttarmælar í hinum þremur.

Sameiginlegi mælirinn er staðsettur í bílskúr gagnaðila. Álitsbeiðandi kveður gagnaðila hafa aftengt raflagnir sem hafi legið frá sameiginlega mælinum í bílskúr hennar og tveggja annarra eigenda þannig að bílskúrar þeirra séu nú án rafmagns. Engar skýringar hér um hafa komið fram af hálfu gagnaðila enda hefur hann ekki látið málið til sín taka fyrir nefndinni. Ljóst er af gögnum málsins að undantekningarákvæði þau sem nefnd eru í fyrrnefndri 2. mgr. 36. gr. eiga ekki við. Telur nefndin því að gagnaðila hafi verið þetta óheimilt enda í andstöðu við fyrirkomulag sem gert er ráð fyrir í eignaskiptayfirlýsingu hússins. Ber því að fallast á kröfu álitsbeiðanda um viðurkenningu á að gagnaðila beri að tengja raflagnirnar að nýju og að honum beri að greiða kostnað við að koma lögnunum aftur í fyrra horf.

Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.


IV. Niðurstaða

Það er álit kærunefndar að fallast beri á kröfur álitsbeiðanda.

 

Reykjavík, 16. janúar 2026

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Þorvaldur Hauksson                                                    Aldís Ingimarsdóttir