16 janúar 2026

/

Saltfiskur og jafnrétti í Portúgal

{image.Description}
María Mjöll Jónsdóttir sendiherra afhenti forseta Portúgals, Marcelo Rebelo de Sousa, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Portúgal
Sendiherra afhenti forseta Portúgals trúnaðarbréf í upphafi vikunnar og átti fundi með fulltrúum stjórnvalda til að styrkja tengsl ríkjanna.

Í áranna rás hafa samskipti ríkjanna byggst á viðskiptum með saltfisk sem er þjóðarréttur Portúgala og mikilvægasta útflutningsvara Íslands á þessum markaði. Sameiginlegir hagsmunir ríkjanna eru verulegir enda ríkin bæði aðilar að innri markaði EES og Atlantshafsbandalaginu og hafa Portúgalar m.a. sinnt loftrýmisgæslu á Íslandi. Bæði ríkin leggja einnig mikla áherslu á alþjóðalög og alþjóðakerfið sem byggst hefur upp frá síðari heimsstyrjöld.

Uppbyggingarsjóður EES veitir styrki til verkefna í Portúgal sem Ísland tekur þátt í, m.a. á sviði bláa hagkerfisins og aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi.  Líkt og hvarvetna annars staðar eru hin Norðurlöndin lykilsamstarfsaðilar á vettvangi og gafst norrænu sendiherrunum tækifæri til að bera saman bækur sínar.