16 janúar 2026
/
„Saman gegn sóun“ – endurskoðuð stefna í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir 2026–2037, ásamt drögum að aðgerðaáætlun 2026–2028. Stefnan er liður í áætlunum stjórnvalda um að stuðla að þeirri framtíðarsýn að á Íslandi verði öflugt hringrásarhagkerfi.
Um er að ræða lögbundna stefnu og byggja drögin á tillögu Umhverfis- og orkustofnunar. Nýja stefnan mun bera heitið, „Saman gegn sóun“, sama heiti og gildandi stefna um úrgangsforvarnir ber, en sú stefna hefur verið í gildi frá árinu 2016.
Samkvæmt fyrirliggjandi drögum verða meginmarkmið stefnunnar að draga markvisst úr magni úrgangs, stuðla að nægjusemi og ábyrgri framleiðslu auk þess að draga úr ofneyslu, auka þekkingu á úrgangsforvörnum og hringrásarhagkerfinu, að hringrásarlausnir nái að festa rætur og að draga úr innihaldi skaðlegra efna og neikvæðum áhrifum af úrgangi. Þá er sérstök áhersla lögð á tiltekna úrgangsstrauma til að styðja við árangur í úrgangsforvörnum á næstu árum. Það eru: matvæli, textíll, byggingar, raftæki, umbúðir og þýðingarmikil hráefni.
Samhliða drögum að nýrri stefnu eru kynnt drög að aðgerðaáætlun vegna úrgangsforvarna fyrir tímabilið 2026–2028. Þar má finna 24 aðgerðir sem stuðla eiga að framkvæmd stefnunnar fyrstu þrjú ár gildistíma hennar. Aðgerðunum er skipt í fimm hluta:
- aðgerðir sem felast í fjárhagslegum hvötum,
- aðgerðir tengdar vitundarvakningu og fræðslu,
- aðgerðir tengdar regluverki og opinberum innkaupum,
- aðgerðir tengdar leiðbeiningum til fyrirtækja og
- aðgerðir sem miða að bættum gögnum.
Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt stjórnvalda er til 2. mars nk.
Saman gegn sóun - Drög að almennri stefnu um úrgangsforvarnir 2026–2037