19 janúar 2026
/
Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014 með áorðnum breytingum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.
Sérstök athygli er vakin á nýlegri reglugerðarbreytingu sem heimilar stjórn sjóðsins að veita allt að 50% framlag vegna viðhalds og endurbóta í stað 20/40% áður.
Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á https://minarsidur.stjr.is.
Mikilvægt er að skila öllum umbeðnum upplýsingum og fylgiskjölum innan tilskilins frests. Ekki verður tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
Umsóknum ber að skila í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 mánudaginn 23. febrúar 2026.