19 janúar 2026
/
Fréttaannáll fjármála- og efnahagsráðuneytisins 2025
Á árinu 2025 var unnið að fjölbreyttum verkefnum á málefnasviðum fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Stórir áfangar komust í höfn og mikilvægar umbætur voru tryggðar, auk þess sem unnið var að fjölda reglubundinna mála.
Fjallað er um þau mál sem efst voru á baugi á síðasta ári í fréttaannál ráðuneytisins.
Meðal þess sem hæst bar á sviði opinberra fjármála var framlagning fjármálastefnu nýrrar ríkisstjórnar og fyrstu fjármálaáætlunar hennar með áherslu á öryggi og innviði. Þá lagði ráðherra á árinu fram fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, auk þess sem skýrsla um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til 30 ára var birt.
Innleidd var svonefnd stöðugleikaregla í lög um opinber fjármál sem stuðlar að efnahagslegu jafnvægi og setur vexti ríkisútgjalda skorður.
Stórir áfangar náðust varðandi eignamál ríkisins. Í maí var samþykkt frumvarp um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og fór söluferlið fram í þeim mánuði. Salan fór fram með markaðssettu útboði þar sem einstaklingar höfðu forgang. Eftirspurnin eftir hlutum í bankanum reyndist mikil og var allur hlutur ríkisins í bankanum seldur.
Þá var lokið við uppgjör skuldabréfa ÍL-sjóðs um mitt árið eftir langt viðræðuferli. Kröfuhafar ÍL-sjóðs, sem voru í langflestum tilfellum lífeyrissjóðir, fengu gert upp að fullu og óvissu um málefni sjóðsins var eytt. Þá náði ríkissjóður að stöðva skuldasöfnun ÍL-sjóðs sem er stórt hagsmunamál fyrir allan almenning í landinu. Um áramót voru lög um sjóðinn felld brott og er unnið að lokafrágangi og slitum sjóðsins.
Meðal umbótamála sem unnið var að í ráðuneytinu má nefna að reglur voru settar um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum sem ætlað er að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu.
Unnið var ötullega að stafvæðingu hins opinbera og bættri þjónustu við almenning á Ísland.is og notkun vefsins jókst áfram. Þá tók ráðuneytið virkan þátt í verkefnum um hagræðingu í ríkisrekstri, sem er eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar. Lög um kílómetragjöld með sanngjarnara og einfaldara kerfi að leiðarljósi voru einnig samþykkt.