23 janúar 2026
/
Eyvör: 117 milljónum úthlutað í netöryggisstyrki til fjórtán verkefna
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, staðfesti í vikunni úthlutun netöryggisstyrkja Eyvarar með undirritun samninga við styrkþega. Alls er 117 milljónum kr. úthlutað til 14 verkefna.
Um er að ræða þriðju úthlutun netöryggisstyrkja Eyvarar á síðustu tveimur árum. Í þessari úthlutun bárust alls 48 umsóknir, sem er mesti fjöldi umsókna frá upphafi styrkjakerfisins.
Úthlutunin er liður í markvissri uppbyggingu netöryggis á Íslandi og endurspeglar vaxandi áherslu stjórnvalda á að efla netöryggisgetu samfélagsins, styðja við nýsköpun á sviðinu og styrkja þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi í netöryggismálum.
Allar umsóknir um netöryggisstyrki Eyvarar eru metnar af fagráði sem gerir tillögu til stjórnar um úthlutun styrkja. Að fenginni samþykkt stjórnar eru úthlutanir staðfestar af ráðherra og í kjölfarið samningar gerðir við styrkþega.
Markmið netöryggisstyrkja er að efla netöryggi og varnir hjá íslenskum fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Til þess að hljóta styrk þurfa verkefni að falla undir einn eða fleiri af eftirfarandi flokkum.
- Efling netöryggismenningar og vitundar.
- Hagnýt menntun, rannsóknir og þróun.
- Örugg stafræn þjónusta og nýsköpun.
- Öflug löggæsla, netvarnir og þjóðaröryggi.
- Skilvirk viðbrögð við atvikum.
- Sterkir innviðir, tækni og lagaumgjörð.
Innviðaráðuneytið fer með yfirstjórn netöryggismála á Íslandi. Með stuðningi við starfsemi Eyvarar er lögð áhersla á að byggja upp þekkingu, samhæfingu og samstarf á sviði netöryggis, bæði innanlands og á vettvangi Evrópusambandsins.
Eyvör er hæfnisetur Íslands á sviði netöryggis og starfar innan netöryggissviðs Fjarskiptastofu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu í gegnum European Cybersecurity Competence Centre (ECCC).