23 janúar 2026

/

Sýningaropnun í sendiráðinu

{image.Description}

Einkar góð stemmning og húsfyllir var í sendiráðinu í síðustu viku, þegar sýningin SKRIPO Í KAUPMANNAHÖFN með verkum eftir tvíeykið Guðjón Viðarsson og Kára Þór Arnarsson var opnuð af Pétri Ásgeirssyni sendiherra.

Frá því sumarið 2023 hafa Guðjón og Kári málað myndir saman undir nafninu Skripo. Þeir vinna jafnan á tvo striga í einu, skiptast á að teikna og mála fígúrur, oft án þess að vita hvert verkið leiðir. Í sumum tilfellum teiknar annar aðeins augu eða handlegg áður en þeir skipta um striga og halda áfram á grunni hins. Þannig verður hver mynd samspil leikgleði, innsæis og sköpunar án fyrir fram ákveðinnar niðurstöðu.

SKRIPO Í KAUPMANNAHÖFN er þeirra önnur listasýning, en sú fyrsta fór fram sumarið 2025 í Epal á Íslandi.

Verk sýningarinnar eru mörg hver innblásin af íslenskri og danskri menningu og er sýningin opin fyrir gestum á opnunartíma sendiráðsins fram til 15. apríl. nk.