23 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 52/2026
Hinn 23. janúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 52/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24110090 og KNU24110091
Kærur [...] og [...] og barns þeirra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14 nóvember 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2024, um að synja þeim og barni þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 26. september 2024. Kváðust kærendur sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna ástandsins í Venesúela og vegna pólitískra ofsókna. Kærendur kváðust sjálf hafa borgað fargjaldið til Íslands. Þau hafa ekki verið í vinnu í heimaríki áður en þau komu til Íslands vegna ofsókna. Kærendur kváðust engan þekkja á Íslands en M kvaðst kannast við einn mann í gegnum tiltekinn samfélagsmiðil. Kærendur eigi foreldra og systkini í heimaríki. Kærendur séu heilsuhraust.
K kom í fyrsta viðtal hjá Útlendingastofnun 1. október 2024. Kærendur komu til efnisviðtals hjá Útlendingastofnun 9. október 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M og K kváðust vera fædd og uppalin í Cantaura í Anzoategui fylki í Veneseúela þar sem þau hafi búið í húsi í eigu móður M áður en þau hafi flúið heimaríki ásamt A. M kvaðst eiga móður, tvo bræður og ömmu í heimaríki. K kvaðst eiga foreldra og systur í heimaríki. M hafi ekki verið í launuðu starfi en starfað sjálfstætt í verkfærafyrirtæki og sem prestur í afrískum söfnuði og hafi veitt ráðgjöf gegn greiðslu til að framfleyta sér og fjölskyldu sinni. K hafi starfað í skóla A og gert neglur heima fyrir. K kvað innkomu þeirra ekki alltaf hafa dugað til að framfleyta henni og fjölskyldu sinni en hún og systkini hennar hafi hjálpast að. A hafi gengið í einkarekinn skóla í heimaríki. Kærendur hafi fjármagnað ferðalagið til Íslands með eigin fjármagni. M sé almennt heilsuhraustur en finni stundum fyrir svima vegna stífra vöðva í kringum herðarnar. K sé hraust líkamlega en glími við andleg vanlíðan vegna atburða í heimaríki. A sé með naflaslit. K tilheyri kaþólskri trú. M kvaðst vera virkur í þágu þess málstaðar að komast undan einræðisstjórn Venesúela. Hann hafi tilheyrt stjórnmálaflokknum Primero Justicia frá 2013 til 2018 þar sem hann hafi verið yfir í sínu sveitarfélagi og verið yfir stjórnmálaherferð fyrir þingkosningar 2015. M hafi flutt sig yfir á Voluntad Popular árið 2018, þar sem hann hafi haft mannaforráð yfir ákveðinni deild sem hafi m.a. haft samskipti við stéttarfélög fyrir launþega. Teldi M sig hafa vakið athygli stjórnvalda með störfum sínum í þágu flokksins á sínu heimasvæði. K hafi verið aðili að stjórnmálaflokknum Primero Justicia frá 2014 til 2016. Hún hafi hætt þegar hún hafi verið ófrísk vegna þess að það hafi verið hættulegt.
Um ástæðu flóttans frá heimaríki kváðu kærendur það vera ofsóknir af völdum stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana þeirra og vegna stjórnmálastarfa M í þágu stjórnandstöðuflokka. M greindi frá því að hann hafi verið í mikilli hættu í dágóðan tíma í heimaríki, hann hafi unnið við að senda upplýsingar frá landinu til Bandaríkjanna. Colectivos og lögreglan hafi hótað honum lífláti, pyntingum og fangelsi. Hafi framangreindar hótannir einnig beinst að fjölskyldu hans. Greindi M frá því að hafa eitt sinn verið að mótmæla þegar skotið hafi verið á mótmælendur hylkjum með táragasi sem hafi leitt til þess að nokkrir mótmælendur hafi látið lífið og sumir særst. Þá greindi hann frá því að hafa verið yfirheyrður af leyniþjónustunni CICPC, eftir ein mótmæli, honum hafi verið haldið um tíma en svo sleppt vegna þess að ekkert hafi fundist á honum. Þegar ríkissaksóknari hafi gefið út handtökuskipanir á hendur leiðtogum Voluntad Popular, hafi M talið að það yrði ekki langt þar til slík handtökuskipun yrði gefin út á hendur honum. Hafi M ákveðið að flýja heimaríki vegna þess að hann hafi ekki viljað verða handtekinn. Aðspurður hvort hann teldi sig vera skotmark stjórnvalda í Venesúela kvað M að allir væru skotmark sem væru í stjórnarandstöðu í Venesúela. Aðspurður hvort komið hafi verið að heimili hans og honum hótað greindi M frá því að hann hafi reynt að halda öllu frá heimili sínu og hafi ekki farið með upplýsingar þangað.
Um atvik er hafi leitt til þess að þau hafi flúið heimaríki greindi K frá því það hafi verið vegna þess að þau hafi verið í hættu vegna handtökuskipana sem gefnar hafi verið út á hendur samstarfsmönnum M. M og K hafi unnið saman í stjórnmálum í Anaco borg. Þau hafi tekið þátt í mótmælum og leiðbeint fólki um hvernig ætti að kjósa. M hafi þó tekið meira í þátt í starfinu og hafi stundum þurft að ferðast úr borginni. Þau hafi flutt til Cantaura vegna þess að opnað hafi verið þar nýtt útibú sem M hafi verið settur yfir. K hafi verið í sjálfboðastarfi fyrir flokkinn. K hafi séð um A og því haldið sig frá starfinu. Ráðist hafi verið á þau þegar þau hafi verið í mótmælum. Aðspurð hvort K hafi orðið fyrir ofbeldi eða áreiti vegna stjórnmálaskoðana, kvaðst hún ekki hafa farið á mótmælagöngur nema eina rétt áður en þau hafi flúið heimaríki. Greindi hún frá því að hafa eitt sinn lent í því þegar hún hafi verið úti á götu eftir kosningarnar að ótilgreindir menn á mótorhjólum hafi hrópað á hana að koma sér inn með ógnandi hætti. Aðspurð um hennar upplifun af þeim mótmælagöngum sem hún hafi tekið þátt í, kvað hún þær hafa verið rólegri áður en þau hafi ákveðið að flýja heimaríki. Það hafi verið forsvarsmenn flokksins sem hafi verið mest í mótmælum og þeir hafi orðið mest fyrir áreiti af Chavismo. Aðspurð kvaðst K ekki hafa orðið fyrir ofsóknum vegna starfa þeirra fyrir flokkinn. Þá kvaðst hún ekki hafa leitað til lögreglu eða yfirvalda í heimaríki.
Kærendur kváðust ekki geta leitað til lögreglu eða yfirvalda í Venesúela vegna þess að þau væru spillt. Aðspurð hvað myndi gerast ef þau myndu snúa aftur til heimaríkis, greindi M frá því að hann yrði stimplaður sem óvinur yfirvalda og jafnvel settur í fangelsi. K kvað að hún og fjölskylda hennar yrðu í hættu í heimaríki og talin vera föðurlandssvikarar fyrir að hafa farið úr landinu. Þá teldu kærendur sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki en áður og verið örugg. Greindi M frá því að yfirmaður hans hafi verið þekktur bæði innanlands og utan og allir þeir sem hafi unnið með honum séu í vandræðum.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A taldi stofnunin að það væri ekki tilefni til að taka sjálfstætt viðtal við A þar sem hún væri ung að árum og framburður foreldra hennar um málsástæður talinn fullnægjandi til að leggja til grundvallar ákvörðun.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 14. nóvember 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 28. nóvember 2024. Viðbótargögn bárust kærunefnd 2. desember 2024. Með tölvubréfi, dags. 13. nóvember 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá M. Frekari upplýsingar bárust frá M 8. desember 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst með sambærilegum hætti og í viðtali þeirra hjá Útlendingastofnun. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi yfirgefið Venesúela vegna hættu á ofsóknum af hálfu yfirvalda þar í landi sem rekja megi til stjórnmálaskoðana þeirra og stjórnmálaþátttöku. K hafi gengið til liðs við stjórnandstöðuflokkinn Primero Justicia árið 2014 og starfað í hans þágu um nokkurra ára skeið. Hún hafi tekið þátt í fjölmörgum mótmælagöngum. Árið 2013 hafi M gengið til liðs við stjórnarandstöðuflokkinn Primero Justicia. Þar hafi hann gegnt nokkuð háttsettri stöðu. Honum hafi verið falin yfirumsjón með starfi flokksins í tilteknu umdæmi innan Anzoategui fylkis. Hann hafi séð um ýmsa viðburði á opinberum vettvangi, skipulagt kosningaherferðir, fundað með leiðtogum flokksins og annarra stjórnarandstöðuflokka. Þá hafi hann verið kosningastjóri í þingkosningum árið 2015. Árið 2018 hafi M gengið til liðs við stjórnarandstöðuflokkinn Voluntad Popular þar sem hann hafi starfað þar til hann hafi flúið heimaríki sitt. M hafi verið starfsmannastjóri fyrir flokkinn í ákveðnu umdæmi. Líkt og í Primero Justicia hafi starf hans falist í því að sjá um ýmsa viðburði á opinberum vettvangi, skipuleggja fundi, skipuleggja kosningaherferðir, standa vörð um atkvæði almennings, efla kosningaþátttöku, koma fram fyrir hönd flokksins og kynna stefnumál hans fyrir almenningi, senda upplýsingar erlendis og veita almenningi ráðgjöf. M hafi unnið náið með leiðtogum flokksins sem sumir hverjir hafi verið á þingi. M hafi vakið athygli stjórnvalda, innan hans umdæmis, með störfum sínum og stöðu innan umræddra stjórnandstöðuflokka og væri hann því sérstakt skotmark stjórnvalda. Hafi M þolað hótanir og ofbeldi af hálfu lögreglu og Colectivos vegna stjórnmálaskoðana sinna. Honum hafi margsinnis verið hótað lífláti, pyndingum og fangelsisvistun. Hafi framangreindar hótanirnar einnig beinst að fjölskyldu hans. Þá hafi kæranda verið yfirheyrður af leyniþjónustunni vegna starfa hans fyrir Voluntad Popular. Hafi M ákveðið að flýja Venesúela þegar handtökuskipanir hafi verið gefnar út á hendur leiðtogum Voluntad Popular. Í ljósi stöðu hans innan flokksins hafi það verið tímaspursmáls hvenær handtökuskipan yrði gefin út á hendur honum. Kærendur hafi ekki getað leitað til lögreglu vegna þess að hún væri hliðholl Maduro og ríkisstjórn hans.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærendur gera ýmsar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir og málsmeðferð Útlendingastofnunnar. Gerð er athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að frásögn M hafi ekki bent til þess að hann hafi verið áberandi í störfum sínum fyrir umrædda stjórnarandstöðuflokka eða vakið athygli stjórnvalda. Frásögn M hafi þvert á móti fengið stuðning í framlögðum gögnum og verið nákvæm og í samræmi, bæði innbyrðis og við frásögn K. Þá er mati Útlendingastofnunar um að kærendum standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda í Venesúela mótmælt og bent á að þau óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Venesúela. Þar að auki benda heimildir til þess að víðtæk spilling og refsileysi opinberra starfsmanna sé viðvarandi vandamál í Venesúela.
Kærendur gera aðallega kröfu um að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka mál þeirra til meðferðar á ný. Byggja kærendur á því að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð kærenda hjá Útlendingastofnun að rétt sé að ógilda ákvarðanirnar. Telja kærendur að brotið hafi verið gegn rannsóknarskyldu stjórnvalda og hvorki hafi verið kannað né lagt mat á upplýsingar um nýjustu vendingar í Venesúela. Í hinum kærðu ákvörðunum sé ekki að finna almenna umfjöllun um þær óeirðir sem hafi skapast eftir kosningarnar nema að litlu leyti. Sé litið til nýlegra heimilda þyki ljóst að almennar aðstæður hafi breyst til hins verra, einkum í kjölfar forsetakosninganna. Útlendingastofnun hafi hvorki fjallað um né tekið afstöðu til málsástæðu kærenda um að þau eigi á hættu að sæta illri meðferð yrði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis síns vegna aðildar þeirra að þjóðfélagshópi einstaklinga sem séu andsnúnir ríkisstjórn Maduro. Þá verði ekki ráðið með óyggjandi hætti af hinum kærðu ákvörðunum hvers vegna Útlendingastofnun hafi talið að almennar aðstæður í Venesúela nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveður á um. Telja kærendur að ákvarðanirnar hafi ekki verið í samræmi við kröfur 22. gr. stjórnsýslulaga um efni rökstuðnings.
Kærendur krefjast þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er krafan byggð á framangreindum atriðum um stjórnmálaskoðanir kærenda.
Kærendur krefjast þess þá að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að raunhæf ástæða sé til að ætla að þau eigi á hættu ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þau send aftur til Venesúela, einkum vegna almennra aðstæðna þar í landi og umræddra atvika er urðu til þess að þau yfirgáfu heimaríki sitt. Ítreka kærendur að almennar aðstæður í Venesúela hafa breyst til hins verra frá því að úrskurðir kærunefndar útlendingamála í málum nr. 525/2023, 539/2023 og 526/2023, dags. 27. september 2023, féllu og enn frekar í kjölfar forsetakosninganna þann 28. júlí 2024. Hvað varði persónubundna þætti sé vert að leggja áherslu á að óumdeilt sé að kærendur séu andsnúnir ríkisstjórn Maduro. Heimildir bera með sér að einstaklingar sem séu andsnúnir stjórnvöldum í Venesúela eða sem séu taldir vera það eigi almennt á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu af hálfu yfirvalda þar í landi.
Til þrautavara krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að rík þörf sé fyrir vernd vegna erfiðra almennra aðstæðna í Venesúela.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingarréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23 .gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og ákvæðum 22. gr. stjórnsýslulaga um efni og innihald rökstuðnings.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Umsækjanda um alþjóðlega vernd er skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa hver hann er, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 16. janúar 2026);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 15. janúar 2026);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 18. janúar 2026, hafði 143 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Kveða samtökin þær tölur verulega lægri en opinberar tölur stjórnvalda í Venesúela og kalla eftir gegnsæi í upplýsingum stjórnvalda. Telja samtökin að enn séu um 700 pólitískir fangar í haldi. Af yfirlýsingu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna fyrir Venesúela frá 12. janúar 2026 hafði aðeins 50 pólitískum föngum verið sleppt af þeim um 800 sem hafi verið í haldi stjórnvalda í Venesúela, ítrekaði erindrekinn kröfu um skilyrðislausa lausn allra þeirra sem hafi verið í haldi.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau hafa ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana. Kærendur byggja einnig á almennu ástandi í Venesúela og að yfirvöld geti ekki veitt þeim vernd.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur hafa flúið heimaríki vegna ofsókna sem þau hafa orðið fyrir af völdum stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana þeirra og stjórnmálastarfa M í þágu stjórnarandstöðuflokka. M greindi frá því að Colectivos og lögreglan hafi hótað honum lífláti, pyntingum og að setja hann í fangelsi. Hafi framangreindar hótanir einnig beinst að fjölskyldu hans. Hann hafi eitt sinn verið á mótmælum þegar skotið hafi verið hylkjum með táragasi að mótmælendum sem hafi leitt til þess að nokkrir mótmælendur hafi látið lífið og sumir særst. Þá hafi hann eitt sinn verið yfirheyrður af leyniþjónustunni CICPC en honum hafi verið sleppt vegna þess að ekkert hafi fundist á hann. Þá hafi M talið að ekki yrði langt þar til það yrði gefin út handtökuskipun á hendur honum líkt og hafi gerst fyrir samstarfsmenn hans hjá Voluntad Popular. Greindi K frá því að hafa eitt sinn lent í því eftir kosningarnar að ótilgreindir menn á mótorhjólum hafi hrópað á hana á ógnandi hátt að koma sér inn þegar hún hafi verið úti á götu. Aðspurð kvaðst K ekki hafa orðið fyrir ofsóknum vegna starfa þeirra fyrir flokkinn.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram ýmis gögn varðandi stjórnmálaþátttöku þeirra einkum myndir sem hafi verið tekin við ýmis tilefni. M lagði einnig fram afrit af tveimur yfirlýsingum um þátttöku hans í stjórnarandstöðuflokknum Voluntad popular, annars vegar dags. 22. janúar 2024 og hins vegar dags. dags. 22. ágúst 2024, sem bera með sér stafa frá [...] fyrrverandi þingmanni og einn af forsvarsmönnum stjórnmálasamtakanna Voluntad popular. Þar kemur m.a. fram að M hafi verið virkur meðlimur stjórnmálaflokksins síðan árið 2018. Hann hafi starfað sem skipuleggjandi viðburða á miðsvæði Anzoátegui fylkis og hafi skipulagt götuviðburði og kosningaherferðir flokksins. Þá kemur einnig fram að vegna aukningu á ofsóknum gegn stjórnarandstæðingum hafi virkir þátttakendur flokksins verið í jafn mikilli hættu fyrir ofsóknum og forsvarsmenn og þeirra sem stýri stjórnmálaflokknum. M lagði einnig fram frumrit af yfirlýsingu dags. 25. febrúar 2024, sem ber með sér stafa frá [...], fyrrverandi þingmanni í Venesúela. Þar kemur m.a. fram að M hafi verið virkur þátttakandi í starfi Voluntad Popular frá árinu 2018. Hann hafi starfað í sveitarfélaginu Pedro Maria Freites í Anzoategui fylki sem aðgerðarsinni, stýrt opinberum samráðsfundum og hvatt til kosningaþátttöku og orðið fyrir áreiti í Venesúela vegna þátttöku hans í flokknum.
Með tölvubréfi, dags. 13. nóvember 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Var M m.a. beðinn um að gera betur grein fyrir hlutverki sínu innan stjórnarandstöðuflokksins Voluntad Popular, hvort hann hafi komið opinberlega fram fyrir hönd flokksins og ef svo væri af hvaða tilefni. Í svari M, dags. 8. desember 2025, greindi hann frá því að hafa komið opinberlega fram fyrir hönd flokksins m.a. á opnum fundum sem hafi verið haldnir í þeim tilgangi að kynna flokkinn og stefnumál hans fyrir almenningi. Einnig kvaðst hann hafa bankað upp á hjá fólki í sama tilgangi. Þar að auki hafi hann tekið þátt í fjölmörgum mótmælum og baráttufundum á vegum flokksins. Kærunefnd óskaði svara M við því í hverju þátttaka hans í skipulagningu hafi falist og hvenær hann hafi síðast tekið þátt í viðburði á vegum flokksins. M kvaðst hafa skipulagt kosningaherferðir, mótmæli og opna kynningarfundi. Hann kvaðst hafa þann 28. júlí 2024 tekið þátt í viðburði á vegum flokksins sem hafi tengst forsetakosningunum. Þá hafi hann síðast tekið þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni 30. júlí 2024.
Kærunefnd vakti athygli á því að M hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi sinnt því verkefni að senda upplýsingar sem aflað hafi verið af flokknum til Bandaríkjanna sem hafi verið afar hættulegt verkefni. Kærandi var beðinn um að gera betur grein fyrir hvað hafi falist í framangreindu verkefni og hvers vegna það væri svo hættulegt. Í svari kæranda greindi hann frá því að hlutverk hans innan flokksins hafi m.a. falist í því að afla og miðla áfram upplýsingar til yfirmanna sem staðsettir hafa verið í Bandaríkjunum, m.a. upplýsingum um stöðu mála í Venesúela og lýsingum á þeim mannréttindabrotum sem framin hafi verið af hálfu yfirvalda í landinu. Hafi upplýsingarnar m.a. verið sendar yfirmanni M, [...]. Hafi þetta verið sérstaklega hættulegt vegna þess að allir þeir sem ynnu gegn yfirvöldum í Venesúela eigi það á hættu að verða settir í fangelsi, beittir ofbeldi eða jafnvel teknir af lífi af hálfu yfirvalda. Kærandi hafi unnið náið með þingmanninum [...] og hafi því margir vitað um störf kæranda.
Þá vakti kærunefnd athygli á því að M hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi verið í mikilli hættu í langan tíma í heimaríki, en þegar hann hafi verið beðinn um að gera betur grein fyrir hættunni hafi hann greint frá því að almennt væru það lögregla og Colectivos sem áreittu þátttakendur í mótmælum og stjórnarandstæðinga en bar ekki fyrir sig persónulega reynslu. Hann greindi frá því að hafa sætt áreiti, ofbeldi og frelsissviptingu þegar hann hafi tekið þátt í mótmælum. Kærunefnd óskaði svara við því hvenær kærandi hafi tekið þátt í mótmælum og hversu oft, hvort hann hafi orðið fyrir áreiti í hvert skipti, hvort hann hafi einhvern tímann orðið fyrir áreiti í beinum tengslum við mótmælafundi eða viðburði á vegum Primero Justicia og Voluntad Popular, ef svo væri hvort hann gæti greint frá hvernig áreiti hann hafi orðið fyrir, hverjir hafi verið þar að verki, hvar það hafi átt sér stað og hversu oft. Í svari M greindi hann frá því að hann hafi tekið þátt í fjölmörgum mótmælum gegn ríkisstjórn Maduro á meðan hann hafi starfað fyrir umrædda stjórnarandstöðuflokka og hafi verið meðal þeirra sem hafi séð um skipulagningu slíkra viðburða. Hann kvaðst ekki hafa nákvæma tölu yfir þau skipti sem hann hafi mætt í mótmæli. Hann greindi frá því að hafa orðið fyrir áreiti af hálfu Colectivos í hvert sinn sem hann hafi tekið þátt í mótmælum og það hafi í raun verið óvíst hvort hann kæmist heill á húfi heim til sín að loknum mótmælum. Hann greindi frá því að hafa orðið fyrir ofbeldi í beinum tengslum við mótmælafundi og á viðburðum á vegum umræddra stjórnmálaflokka. Colectivos hafi oftar en ekki beitt táragasi á mótmælum sem kærandi hafi tekið þátt í. Jafnframt hafi hann orðið fyrir barsmíðum, verið ógnað með vopnum og hótað um ofbeldi og lífláti. Kærandi hafi orðið síðast fyrir áreiti á síðustu mótmælum sem hann hafi tekið þátt í lok júlí 2024.
Eins og að framan greinir lögðu kærendur fram ljósmyndir sem að þeirra sögn sýni þátttöku þeirra í mótmælum. Kærunefnd áréttar að gögn af slíku tagi hafa takmarkað vægi og bendir ekki til þess að þau hafi verið meira áberandi í mótmælunum en aðrir. Einkum m.t.t. þess fjölda Venesúelabúa sem hafi tekið þátt í mótmælum í landinu. Upplýsingar í framlögðum yfirlýsingum styðja við frásögn kærenda um stjórnmálaþátttöku M. Með tilliti til frásagnar kærenda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að M hafi verið virkur í þágu Voluntad popular frá 2018 og þar áður í starfi flokksins Primero Justicia. Framangreind gögn bera þó ekki með sér að M hafi verið háttsettur innan flokksins. Verður því ekki lagt til grundvallar að M hafi verið sérstakur leiðtogi innan flokksins.
Með vísan til frásagnar kærenda, gagna málsins og heimilda um heimaríki þeirra telur kærunefnd ekki ástæðu til þess að draga í efa að kærendur hafi verið á móti stjórnvöldum og M hafi tekið virkan þátt í stjórnarandstöðuflokkum. Þá telur kærunefnd ekki hægt að útiloka að M hafi orðið fyrir áreiti í mótmælum á vegum Voluntad popular og K hafi orðið fyrir einhverju áreiti á götum úti í heimaríki. Samkvæmt upplýsingum um heimaríki kærenda m.a. skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023, hafa öryggissveitir stjórnvalda ítrekað ráðist gegn mótmælendum í landinu síðan árið 2014 en tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu frá þeim tíma. Í skýrslu Freedom House frá 2021 og 2025 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Af framangreindum heimildum verður þó ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Af framburði kærenda og gögnum málsins verður ekki ráðið að M hafi verið sérstakt skotmark stjórnvalda þrátt fyrir að hafa orðið fyrir áreiti lögreglunnar og Colectivos þegar hann hafi tekið þátt í mótmælum líkt og heimildir bera að hafi átt við um langflesta þátttakendur í mótmælum. Þá bera frásagnir kærenda ekki með sér að þau hafi sætt áreiti eða ofsóknum fyrir utan opinbera viðburði á vegum stjórnarandstöðunnar í landinu. Verður því ekki fallist á að þau hafi leitt líkur að því að þau eigi frekar á hættu að verða fyrir ofsóknum en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum og hafi tekið þátt í mótmælum, eða öðru stjórnmálastarfi. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa ekki til kynna að almennir meðlimir stjórnarandstöðuflokka í Venesúela veki athygli yfirvalda af þeim sökum einum. Yfirvöld hafi frekar beint spjótum sínum að aðilum sem séu háttsettir eða í forsvari fyrir stjórnarandstöðuflokka. Með vísan til framangreinds hafa kærendur ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi orðið fyrir ofsóknum eða hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í heimaríki sínu, í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærendur bera einnig fyrir sig að raunveruleg hætta sé á að umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela verði fyrir illri meðferð við endursendingu til Venesúela. Kærunefnd bendir á að samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barni þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem þau séu í hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki vegna almenns ástands sem þar ríkir. Þá byggja kærendur einnig á einstaklingsbundnum aðstæðum.
Þó öryggisástand í Venesúela sé á ákveðnum svæðum ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafa átök að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu og Brasilíu. Benda almennar heimildir ekki til þess að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og unnið að því í samstarfi við alþjóðasamfélagið að bæta slíka aðstoð. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin hagvöxtur hafi aukist þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og vöruframboð aukist að einhverju leyti þrátt fyrri hátt verðlag. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Hvað varðar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtöku Maduro og eiginkonu hans af hálfu bandarískra stjórnvalda er ekkert sem bendir til þess að þær aðgerðir hafi leitt til þess að aðstæður í landinu hafi versnað fyrir almenning í landinu. Benda heimildir til þess að stjórnvöld hafi brugðist við með því að setja í embætti varaforseta landsins og að stjórn og innviðir landsins séu eins og er stöðugir. Þá hafa ekki brotist út mótmæli eða vopnuðu átök sem eða komið upp önnur atvik sem benda til þess að almennar aðstæður séu slíkar að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds verða frekari persónulegir þættir að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í borginni Cantaura í Anzoátegui fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Anzoátegui í norðurhluta Venesúela Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og barn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og barn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera með góða líkamlega og andlega heilsu en finni stundum fyrir svima vegna stífra vöðva í kringum herðarnar og taki lyf að staðaldri. K kvaðst vera með góða líkamlega heilsu en væri með andlega vanlíðan vegna atburða er hafi átt sér stað í heimaríki. Þá kvaðst K ekki vera með góða sjón og noti gleraugu. Hún taki ekki lyf að staðaldri. A hafi verið með hálsbólgu og væri með naflaslit sem hrjái hana ekki. Greindi K frá því að hafa farið á einkasjúkrahús með A vegna þess að erfitt hafi verið að komast að í almanna heilbrigðiskerfi Venesúela. Hafi hún getað greitt fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða barn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og barn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða barn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá að hafa búið í húsi í eigu móður M í Cantaura í Anzoategui fylki í Veneseúela áður en þau hafi flúið heimaríki ásamt A. M kvaðst eiga móður, tvo bræður og ömmu í heimaríki. K kvaðst eiga foreldra og systur í heimaríki. M hafi ekki verið í launuðu starfi en hafi starfað sjálfstætt í verkfærafyrirtæki og sem prestur í afrískum söfnuði og veitt ráðgjöf gegn greiðslu til að framfleyta sér og fjölskyldu sinni. K hafi starfað í skólanum hjá A og gert neglur. A hafi gengið í einkarekinn skóla í heimaríki. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og barni sínu í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 26. september 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og barni þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen. Kvað M að þetta væri ákvörðun stofnunarinnar en hann viti ekki hvað myndi gerast fyrir hann ef þeim yrði gert að snúa aftur til Venesúela. K kvað að það yrði erfitt fyrir hana ef henni yrði neitað um alþjóðleg vernd hér á landi. Hún og fjölskylda hennar þyrftu að búa til önnur áform.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir