23 janúar 2026

/

Vel heppnuð heimsókn fjárlaganefndar Alþingis

{image.Description}
Fulltrúar fjárlaganefndar við þinghúsið í París
Sendiráðið tók á móti fulltrúum fjárlaganefndar Alþingis í París í vikunni þar sem þeir voru staddir í fræðsluferð. Hjá OECD fengu þeir kynningu á verklagi við fjárlagagerð þjóðríkja og hittu þeir sömuleiðis kollega sína í neðri deild franska þingsins þar sem þingkonan Claire Lejeune, formaður vinahópsins Frakkland-Ísland, tók á móti hópnum. Þá funduðu þeir með fulltrúum frá franska fjármálaráðinu sem kynntu hlutverk ráðsins í tengslum við fjárlagafrumvörp franska þingsins og eftirlitshlutverk við framkvæmd þeirra. Að lokum heimsóttu þau Seðlabanka Frakklands, sem fór yfir stöðu efnahagsmála í Frakklandi, þjóðhagsspá næstu ára, peningamálastefnu og Evrópusamstarf.