28 janúar 2026

/

Opið fyrir umsóknir um tækjastyrk í lífrænum landbúnaði

{image.Description}
istock/Edyta Falowska

Atvinnuvegaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um tækjastyrk í lífrænum landbúnaði.

Stuðningur er veittur til kaupa á sérhæfðum búnaði sem stuðlar að aukinni framlegð í lífrænum landbúnaði og/eða bættri nýtingu lífræns áburðar. Hægt er að sækja um styrki fyrir kaupum á tækjum á borð við sem róbóta, niðurfell¬ingarbúnað til áburðardreifingar, tæki til safnhaugagerðar, tækni fyrir nákvæmnislandbúnað, illgresishreinsa og öðrum tækjum sem uppfylla framangreind markmið.

Umsækjendur þurfa að vera með gilda lífræna vottun í landbúnaði og uppfylla almenn skilyrði fyrir landbúnaðarstyrkjum sbr. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað.

Með umsókn þarf að fylgja:

  • Nafn, kennitala og lögheimili framleiðanda sem sækir um stuðning.
  • Búsnúmer lögbýlis.
  • Lýsing á búrekstri, þar með talið upplýsingar um gripafjölda eftir tegundum búfjár, flatarmál lands eftir tegund nytja og aðstæður í gripahúsum.
  • Kaupverð þeirra tækja sem umsókn varðar.
  • Upplýsingar um áður fenginn aðlögunarstuðning ef við á.
  • Samantekt um hvernig umrædd tæki sem sótt er um styrk fyrir stuðla að aukinni framlegð í lífrænum landbúnaði og/eða bættri nýtingu lífræns áburðar.
  • Staðfesting á lífrænni vottun frá faggiltri vottunarstofu.

Sækja má um í Afurð til miðnættis 28. febrúar nk.

Verkefnið er tímabundið og eru alls 30 milljónir króna til ráðstöfunar.

Nánari upplýsingar um forgangsröðun, afgreiðslu og mat á umsóknum má nálgast í reglugerð nr. 1226/2024 um breytingu á reglugerð um almennan stuðning við landbúnað.